Innlent

Maðurinn fannst látinn

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Maðurinn sem leitað var að á Ísafirði í dag fannst látinn nú síðdegis. Hann fannst skömmu eftir að skipulögð leit hófst. Ekkert bendir til þess að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að maðurinn hafi farið í göngutúr frá heimili sínu á Ísafirði, klukkan 13 í dag. Þegar hann hafi ekki skilað sér heim hafi björgunarsveitir verið kallaðar út, en hans var leitað á Ísafirði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×