Innlent

Fimm stöðvaðir með fölsuð skilríki í flugstöðinni

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Fimm einstaklingar voru stöðvaðir með fölsuð skilríki eða skilríki í eigu annarra í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í vikunni.

Einn þeirra framvísaði dönsku vegabréfi sem hann átti ekki og hafði engin lögmæt skilríki þegar eftir því var leitað, segir í tilkynningu frá lögreglu.

Í öðru máli komu þrír saman og framvísaði einn þeirra grunnfölsuðu japönsku vegabréfi en hinir tveir breytifölsuðum skilríkjum. Sá fimmti framvísaði grunnfölsuðu japönsku vegabréfi sem hann kvaðst hafa keypt í Grikklandi.

Málin eru komin í farveg að því er segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×