Innlent

Í fíkniefnaviðskiptum með fimm mánaða barn í bílnum

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt en allt komu 55 mál inn á borð þeirra.
Erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt en allt komu 55 mál inn á borð þeirra. Vísir/Vilhelm
Karlmaður og kona voru handtekin rétt fyrir klukkan átta í gærkvöldi eftir að upp komst um fíkniefnaviðskipti þeirra á milli á bílastæði í austurborginni. Konan, sem er tvítug, var með fimm mánaða gamalt barn sitt í bílnum og var barnaverndarfulltrúi boðaður á lögreglustöðina, að því er segir í tilkynningu frá lögreglu.

Þá óskaði erlendur ferðamaður eftir aðstoð lögreglu upp úr miðnætti en hann hafði leigt herbergi í miðborginni en þurft að flýja út vegna ölvunarástands leigusalans. Ferðamaðurinn hafði skilið ferðatöskuna sína eftir í íbúðinni og þurfti aðstoð við að nálgast hana aftur. Lögreglumenn sóttu töskuna og óku ferðamanninum á næsta hótel.

Kona á fertugsaldri var handtekin grunuð um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Hún hafði ekið í gegnum stóra rúðu í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði, og talið er að konan hafi gert það viljandi. Konan var vistuð í fangageymslu þar til hægt verður að ræða við hana vegna málsins.

Tveir karlmenn voru handteknir í Hlíðahverfi laust eftir klukkan átta í gærkvöldi eftir að öryggisverðir úr Kringlunni höfðu veitt þeim eftirför og handsamað þá eftir að þeir voru staðnir að þjófnaði úr  verslun. Mennirnir viðurkenndu brot sín og var sleppt eftir skýrslutöku.

Þá segir í skeyti frá lögreglu að ökumaður hafi verið stöðvaður á Reykjanesbraut í Kópavogi vegna þess að hún var með röng skráningarmerki. Í ljós kom að bíllinn var ótryggður og ökumaðurinn undir áhrifum fíkniefna. Við leit í bílnum fundust fíkniefni og munir sem maðurinn gat ekki gefið skýringar á, en nokkrir munanna voru merktir fyrirtæki sem brotist var inn í nýverið.  Maðurinn gistir í fangageymslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×