Innlent

Ráðherraskipan eigi að endurspegla þingstyrk

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, er hóflega bjartsýnn á að myndun ríkisstjórnar með Sjálfstæðisflokki og Bjartri framtíð takist í þetta skiptið. Áður höfðu viðræður farið út um þúfur.

„Maður reynir þó að vera raunsær líka. Þetta er ekki búið fyrr en þetta er búið,“ segir Benedikt.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, fékk í gær formlegt umboð til ríkisstjórnarmyndunar og taka nú formlegar stjórnarmyndunarviðræður Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar við. Á blaðamannafundi á Bessastöðum sagði Bjarni gert ráð fyrir því að hann yrði forsætisráðherra ríkisstjórnarinnar ef myndun hennar tækist.

Þá sagði Bjarni viðræðurnar komnar lengra en síðast er flokkarnir áttu í formlegum viðræðum. Einnig væru viðræður um sjávarútvegs- og Evrópumál langt komnar.

„Ég held við getum náð ásættanlegri lendingu í þeim málum. Við erum enn að vinna að þessu en erum búin að tala okkur í gegnum það sem helst hefur strandað á til þessa. Við teljum að þar sé kannski komin sú lending sem dugir,“ segir Benedikt sem kveður betur ganga núna vegna aukins samstarfsvilja.

„Svo er þetta búið að ganga í tvo mánuði eins og allir vita og menn eru kannski búnir að sjá að aðrir kostir virðast ekki ganga upp.“

Benedikt kveðst sáttur við að Bjarni verði forsætisráðherra. Annað hafi ekki komið til tals að þessu sinni.

Varðandi önnur ráðherraembætti segir Benedikt að sú umræða sé stutt á veg komin. Engin ákvörðun liggi fyrir um að fjölga eða fækka ráðherraembættum. 

„Við höfum rætt skipan stjórnarráðsins almennt en ekki tekið neina ákvörðun í því. Það hafa verið gerðar breytingar á undanförnum árum og við höfum velt því fyrir okkur hvernig þetta sé haganlegast gert.“

Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins er mun stærri en hinna flokkanna, með 21 þingmann. Viðreisn er með sjö þingmenn og Björt framtíð fjóra.

„Ég reikna með því að stærð flokkanna muni nú eitthvað endurspeglast í fjölda ráðherra en kannski ekki að öllu leyti,“ segir Benedikt.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×