Innlent

Skoða minnstu flugbrautina í Keflavík fyrir sjúkra- og innanlandsflug

Höskuldur Kári Schram skrifar
Innanríkisráðherra skoðar nú hvort hægt sé að opna minnstu flugbrautina á Keflavíkurflugvelli til að þjóna sjúkra- og innanlandsflugi. ISAVIA telur að hægt sé að klára verkið á nokkrum mánuðum fyrir 280 milljónir króna.

Minnstu flugbrautinni á Reykjavíkurflugvelli var lokað í júlímánuði síðastliðnum eftir að hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að ríkinu væri skylt að efna samkomulag sitt við borgaryfirvöld sem var undirritað 2013.

Um er ræða norðaustur-suðvesturbraut Reykjavíkurflugvallar en nokkrir flugrekstraraðilar hafa lýst yfir óánægju með þessa lokun og telja að hún takmarki notkunarmöguleika flugvallarins. Þeir vilja að brautin verði opnuð á ný þangað til búið verði að finna aðra lausn á málinu.

Innanríkisráðuneytið fer með yfirstjórn flugvallamála en í bréfi sem borgarstjóri sendi ráðherra í júlímánuði 2015 er vakin athygli á því að hægt sé að opna sambærilega flugbraut á Keflavíkurflugvelli en þeirri flugbraut var lokað fyrir fimmtán árum.

Isavia lét gera kostnaðarmat á framkvæmdum vegna þessa og í minnisblaði sem var sent ráðherra í septembermánuði síðastliðnum eru lagðar fram þrjár lausnir. Sú ódýrasta kostar 280 milljónir en sú dýrasta tæpan einn og hálfan milljarð.

Innanríkisráðherra hefur nú þetta mál til skoðunar en í svari ráðuneytis við fyrirspurn fréttastofu kemur fram að vilji ráðherra standi til þess að opna brautina í Keflavík og að nú sé verið að meta mögulegar fjárveitingar til verkefnisins.

Leifur Hallgrímsson framkvæmdastjóri Mýflugs, sem sérhæfir sig meðal annars í sjúkraflugi, segir að flugbrautin í Keflavík leysi þó ekki allan vanda.

„Hún leysir ekki bráðavandann því það er mjög langt frá Keflavík til Reykjavíkur. Hún leysir ekki bráðavandann ef það þarf að koma sjúklingi undir læknishendur á Landspítalanum því það tekur töluvert lengri tíma ef það þarf að lenda í Keflavík,“ segir Leifur.

Fréttastofa óskaði einnig eftir viðtali við Ólöfu Nordal innanríkisráðherra en ráðherra var vant við látinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×