Fótbolti

Rúrik í umspil og Jón Daði lagði upp

Anton Ingi leifsson skrifar
Rúrik var í byrjunarliðinu í dag.
Rúrik var í byrjunarliðinu í dag. vísir/getty
Jón Daði Böðvarsson lagði upp mark fyrir Kaiserslautern sem tapaði 5-2 fyrir St. Pauli í þýsku B-deildinni í dag.

Selfyssingurinn lagði upp mark fyrir Lukas Goertler á fjórðu mínútu, en svo fór allt í baklás og Kaiserslautern tapaði 5-2.

Jón Daði spilaði allan leikinn, en Kaiserslautern endar í tíunda sæti deildarinnar.

Rúrik Gíslason og félagar í Nurnberg eru á leið í umspil um laust sæti í úrvalsdeildinni eftir 1-0 sigur á Paderborn.

Íslendingurinn spilaði í 67 mínútur, en Nurnberg endar í þriðja sætinu. Liðið mun mæta Eintracht Frankfurt í umspilinu, í tveimur leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×