Innlent

Alelda bíll á hringtorgi í Kópavogi

Atli Ísleifsson skrifar
Eldur kom upp í bíl á hringtorgi á mótum Arnarnesvegar og Reykjanesbrautar í Kópavogi skömmu fyrir hádegi.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er bíllinn alelda en slökkvilið er nú á leiðinni.

Uppfært 12:12

Búið er að slökkva eldinn. Eldurinn kom upp í akstri en samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði slasaðist enginn. Bíllinn er mjög illa farinn, ef ekki ónýtur.

Aron tómas
Bíllinn er mjög illa farinn.Vísir/Lillý Valgerður



Fleiri fréttir

Sjá meira


×