Viðskipti innlent

Ingibjörg Margrét ráðin skrifstofustjóri leikskólamála

Atli Ísleifsson skrifar
Ingibjörg M. Gunnlaugsdóttir.
Ingibjörg M. Gunnlaugsdóttir. Mynd/Reykjavíkurborg
Ingibjörg M. Gunnlaugsdóttir hefur verið ráðin í starf skrifstofustjóra fagskrifstofu leikskólamála á skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar.

Á vef Reykjavíkurborgar segir að Ingibjörg Margrét eigi að baki langan starfsaldur í leikskólamálum eða um 34 ár.

„Hún hefur unnið sem deildarstjóri í leikskóla, aðstoðarleikskólastjóri, leikskólastjóri, leikskólaráðgjafi, þróunarfulltrúi og undanfarin 4 ár verið staðgengill skrifstofustjóra á fagskrifstofu leikskólamála. Á haustmánuðum hefur hún verið starfandi skrifstofustjóri á fagskrifstofu leikskólamála.

Ingibjörg Margrét hefur jafnframt  tekið þátt í og stýrt mörgum stýrihópum og starfs- og vinnuhópum á vegum Leikskólasviðs og skóla- og frístundasviðs,“ segir í fréttinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×