„Gríðarlega mikilvægt að geta endurheimt hann“

Aðgerðirnar eru með þeim umfangsmestu í sögu Landsbjargar en ungur ferðamaður í gönguferð um svæðið rann af tuttugu metra þykkri íshellu við gilið og út í jökulá, sem bar bar hann undir íshelluna. Maðurinn fannst látinn seint í gærkvöldi. Hann var franskur ríkisborgari fæddur árið 1989.
Fjórir kafarar frá Landhelgisgæslunni voru á staðnum en þeir eru allir hluti af sprengisveit gæslunnar sem tók þátt í að losa um ísinn í íshellunni svo auðveldara væri að moka snjónum burt.
Jónas Karl Þorvaldsson, einn kafaranna, segir að aðstæður hafi verið gríðarlega erfiðar. Köfun í straumvatni sé alltaf mjög erfið og hættuleg, en þegar um er að ræða jökulá undir ís sé verkefnið vandasamt.
„Við erum náttúrlega að kafa í lokuðu rými þarna. Við erum að kafa í straumvatni og þetta er jökulá þannig að það er ekkert skyggni. Það var mjög þröngt svo þetta voru ekki ákjósanlegar aðstæður til að kafa í. En við reyndum að tryggja aðstæður sem best þarna. Það var búið að græja útgönguleiðir og við köfuðum þetta á aðfluttu lofti. Þannig að við reyndum að gera þetta eins öruggt og hægt var,“ segir Jónas.
Kafararnir höfðu verið að í um þrjá tíma þegar maðurinn fannst. Jónas segir það hafa verið mikinn létti.
„Það var mikill léttir og sérstaklega þegar maður hugsar til aðstandenda, að geta skilað honum heim. Það náttúrlega er gríðarlega mikilvægt að geta endurheimt hann.“
Hann segir að gott samstarf hafi orðið til þess að vel gekk að skipuleggja og framkvæma aðgerðirnar. Góð samvinna hafi gert það að verkum að maðurinn fannst.
„Það þurfti að vera með mikla útsjónarsemi í þetta. Bæði að nota keðjusagir til að saga ísinn og svo sprengdum við mikið til að mylja ísinn svo það væri hægt að moka hann. Með sameiginlegu átaki gekk þetta. Þetta gekk alveg ótrúlega vel miðað við þessar aðstæður sem voru þarna.“
Tengdar fréttir

Féll niður um snjóbrú
Aðstæður eru nokkuð erfiðar í Sveinsgili en leitað er að manni sem féll í ánna fyrr í kvöld.

Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar aðstoðar við leitina
Erlendur ferðamaður féll ofan í á við Sveinsgil norðan Torfajökuls í gærkvöldi.

Féll í á við Sveinsgil
Björgunarsveitirnar frá Hellu að Kirkjubæjarklaustri voru kallaðar út vegna manns sem féll í á við Sveinsgil fyrr í kvöld.

Umfangsmiklar björgunaraðgerðir: Maðurinn féll fram af snjóhengjunni
Sveinsgil er í Torfajökli á Fjallabaksleið nyrðri en mennirnir tveir voru aðeins í dagsferð um svæðið.

Fékk hjartaáfall við björgunaraðgerðir í Sveinsgili
Í gær var leitað að frönskum ferðamanni sem rann af snjóhengju við Torfajökul út í jökulá.

Ferðamaðurinn í Sveinsgili fundinn
Björgunarmenn hafa staðsett manninn undir skaflinum við ánna þar sem leitað var.

Maðurinn enn ófundinn: Kafarar Landhelgisgæslunnar á leið í Sveinsgil
Sveitir á staðnum héldu stöðufund nú klukkan tvö.

Þrekraun í Sveinsgili: „Þessir sjálfboðaliðar sem við Íslendingar eigum eru alveg einstakir“
"Manni leist ekkert á stöðuna þarna því það var ekkert hægt að koma neinum tækjum að,“ segir yfirmaður svæðisstjórnar.

Ferðamaðurinn í Sveinsgili látinn
Lík mannsins hefur verið flutt til byggða.

Sérsveit lögreglu kölluð út í Hafnarfirði
Lögregla fékk tilkynningu um vopnaðan mann. Hannssýndi enga ógnandi tilburði þegar lögregla kom á svæðið.

Engar „óþarfa hetjudáðir“ í Sveinsgili
„Þetta er ekki fyrir hvern sem er, bæði hættulegt og erfitt. Vatnið er afar kalt og það er mikill straumur,“ segir Sigurður.