Fótbolti

Hollensku goðsagnirnar fengu allar að fara á flýtinámskeið í þjálfarafræðunum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hollendingar fagna Evrópumeistaratitlinum í München 1988.
Hollendingar fagna Evrópumeistaratitlinum í München 1988. Vísir/Getty
Knattspyrnuþjálfarar dagsins í dag þurfa að fara í gegnum hin ýmsu þjálfaranámskeið til að öðlast nauðsynleg réttindi til að stýra fótboltaliðum á stóra sviðinu.

Það getur því tekið sinn tíma að komast alla leið að því að vera með hæstu gráðu. Íslenskir leikmenn sem hafa átt langa atvinnumannaferla þurfa að þræða öll námskeiðin eins og aðrir verðandi þjálfarar.

Hollendingarnar fóru hinsvegar aðra leið þegar þeir komu goðsögnum sínum úr Evrópumeistaraliðinu 1988 af stað í þjálfun.

Stórstjörnur Evrópumeistaraliðs Hollands frá 1988 hafa síðan verið áberandi í evrópska fótboltanum og einn af þeim er Ronaldo Koeman, núverandi stjóri Everton, sem tók við stjórnartaumunum á Goodison Park fyrir þetta tímabil.

Ruud Gullit, fyrrverandi knattspyrnustjóri og núverandi knattspyrnuspekingur á BBC, segir frá þessu þegar hann var fenginn til að segja frá landa sínum Ronald Koeman í pistli á BBC.

„Ég sá það strax hversu nákvæmur Ronald Koeman yrði sem knattspyrnustjóri þegar við unnum okkur inn þjálfararéttindin saman í Hollandi 1988 og hann tók fram pennaveskið,“ skrifaði Ruud Gullit.

„Það var nýbúið að reka mig hjá Chelsea og ég ásamt Ronald, Frank Rijkaard og Marco van Basten fórum á sérstak hraðnámskeið hjá hollenska sambandinu sem var sett á laggirnar fyrir fyrrum landsliðsmenn. Það gaf okkur tækifæri að öðlast réttindin á aðeins einu ári," skrifaði Ruud Gullit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×