Fótbolti

Þrettán ára undrabarn spilaði fyrir U-20 ára lið Celtic | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Dembele kemur hér af bekknum í gær.
Dembele kemur hér af bekknum í gær.
Hinn 13 ára gamli Karamoko Dembele er á allra vörum í dag eftir að hafa spilað sinn fyrsta leik fyrir U-20 ára lið Celtic í gær.

Hann spilaði þá síðustu níu mínturnar í leik gegn Hearts. Hann kom þá inn af bekknum fyrir hinn 16 ára gamla Jack Aitchison sem varð yngsti leikmaður í sögu Celtic er hann kom við sögu í leik með aðalliðinu á síðustu leiktíð.

Aitchison skoraði með sinni fyrstu snertingu í aðalliðinu í 7-0 sigri á Motherwell. Hann var þá 16 ára og 71 daga gamall.

Dembele virðist hafa hæfileikana til þess að slá þetta met. Á myndbandinu hér að neðan sést að strákurinn er ansi efnilegur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×