Viðskipti innlent

Hagnaður Íslandsbanka helmingast

Hafliði Helgason skrifar
Íslandsbanki hefur hagnast um 15,6 milljarða króna það sem af er ári. Fyrri uppgjör bankans hafa litast af einskiptishagnaði.
Íslandsbanki hefur hagnast um 15,6 milljarða króna það sem af er ári. Fyrri uppgjör bankans hafa litast af einskiptishagnaði. vísir/Anton Brink
Hagnaður Íslandsbanka eftir skatta á þriðja ársfjórðungi nam 2,5 milljörðum króna og lækkaði úr tæpum sex milljörðum króna fyrir sama fjórðung í fyrra. Arðsemi eigin fjár bankans af reglulegri starfsemi var 8,7% samanborið við 11,1% sama fjórðung í fyrra miðað við 15% eigið fé.

Talsvert meira eigið fé er bundið í rekstri bankans, eða tæp 28%. Það liggur meðal annars í því að bankinn sótti sér 500 milljónir evra eða ríflega 60 milljarða í erlendu skuldabréfaútboði en þeir fjármunir voru meðal annars notaðir til að greiða víkjandi lán. Bankinn er því vel fjármagnaður.

Birna Einarsdóttir, forstjóri Íslandsbanka.
Það sem af er ári er hagnaður Íslandsbanka 15,6 milljarðar króna, en var 16,7 milljarðar fyrstu níu mánuði ársins 2015. Vaxtamunur bankans sem er munur á innlánum og útlánum var þrjú prósent samanborið við 2,9% árið áður. Vaxtamunur íslensku bankanna er hærri en í nágrannalöndunum. Jón Guðni Ómarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs bankans, segir skýringuna liggja annars vegar í hærra vaxtastigi og svo því að íslenskir bankar búi ekki við sömu stærðarhagkvæmni og erlendir bankar.

Fyrri uppgjör bankans hafa litast af einskiptishagnaði, en uppgjör þriðja ársfjórðungs endurspeglar betur grunnrekstur hans. Birna Einarsdóttir, forstjóri Íslandsbanka, segir uppgjör bankans sýna sterka stöðu á markaði og góðan undirliggjandi rekstur. Hún segir skuldastöðu heimila hafa batnað en í uppgjörinu sést að vanskil hafa minnkað verulega á síðustu misserum.

„Vaxtatekjur jukust um 13% frá fyrra ári og stafar það fyrst og fremst af hærra vaxtaumhverfi og auknu eigin fé. Samkeppni í útlánum fer harðnandi, sem samhliða sívaxandi skattlagningu á fjármálakerfið mun gæta í arðsemi bankans til lengri tíma,“ segir Birna.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×