Innlent

Ástæðulaust að endurskoða búvörusamninga þrátt fyrir gagnrýni

Höskuldur Kári Schram skrifar
Formaður Bændasamtakanna telur ástæðulaust að endurskoða búvörusamningana frá grunni þrátt fyrir harða gagnrýni. Hann segir bagalegt að Alþingi skuli ekki vera búið að afgreiða málið nú þegar.

Búvörusamningarnir voru undirritaðir í febrúarmánuði síðastliðnum. Bændur samþykktu samninginn fyrir sitt leyti í lok marsmánaðar en Alþingi á enn eftir að klára málið.

Samningarnir hafa verið harðlega gagnrýndir meðal annars af Félagi atvinnurekenda, Samtökum atvinnulífsins, Neytendasamtökunum, Alþýðusambandinu og nú síðast Samkeppniseftirlitinu.

Í umsögn Samkeppniseftirlitsins til atvinnuveganefndar Alþingis eru samningarnir meðal annars sagðir vinna gegn hagsmunum bænda og neytenda. Eftirlitið telur ennfremur að samningarnir skapi óvissu um framkvæmd á samkeppnislögum og hvetur til þess að þeir verði endurskoðaðir.

Sindri Sigurgeirsson formaður Bændasamtakanna telur hins vegar ástæðulaust að endurskoða samningana frá grunni.

„Nei ég tel nú ekki ástæða til þess að semja upp á nýtt. Ef það eru einhverjir augljósir agnúar á samningunum. Ef það er eitthvað sem þarna er verið að ákveða sem er ekki í samræmi við lög þá er að sjálfsögðu eðlilegt að það sé skoðað. En að vera gera grundvallarbreytingar á samningunum kallar á það að setjast algerlega við þetta aftur. Við verðum þá að endurnýja umboðið og sækja það til bænda og senda málið í atkvæðagreiðslu. Þannig að ég tel að við eigum að klára þetta eins og þetta lítur út í dag,“ segir Sindri.

Hann segir bagalegt að Alþingi sé ekki búið að afgreiða málið.

„Samningarnir eiga að taka gildi um næstu áramót. Það að þetta skuli ekki þegar vera frágengið veldur mikilli óvissu fyrir bændur því menn þurfa í löngum framleiðsluferlum að fara að taka ákvarðanir fyrir næsta ár,“ segir Sindri. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×