Enski boltinn

Firmino myndi taka Götze opnum örmum hjá Liverpool

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mario Gotze spilaði lítið á síðasta tímabili.
Mario Gotze spilaði lítið á síðasta tímabili. vísir/getty
Brasilíumaðurinn Roberto Firmino hjá Liverpool myndi fagna því að fá Mario Götze til liðs við félagið í sumar.

Götze er á mála hjá Bayern München en missti af stórum hluta tímabilsins vegna meiðsla og átti svo erfitt með að vinna sér sæti í byrjunarliðinu.

Firmino þekkir vel til Götze eftir að hafa spilað með Hoffenheim í fjögur ár í þýsku úrvalsdeildinni.

„Ég spilaði gegn honum bæði þegar hann var hjá Dortmund og Bayern,“ sagði Firmino í samtali við Bild í gær. „Hann myndi passa vel við okkar lið og það er enginn vafi á því að hann myndi styrkja okkur.“

Götze er uppalinn hjá Dortmund og fékk sitt fyrsta tækifæri þar hjá Jürgen Klopp sem nú er stjóri Liverpool. Götze hefur verið orðaður við bæði lið síðustu vikur og mánuði.


Tengdar fréttir

Vilja Gotze aftur heim

Forráðamenn þýska knattspyrnuliðsins Borussia Dortmund eiga að vera undirbúa tilboð í Þjóðverjann Maro Gotze frá Bayern Munchen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×