„Stærsta og flóknasta vandamál sem við höfum séð á þessari öld“ Stefán Ó. Jónsson skrifar 4. janúar 2016 11:44 Lars Løkke Rasmussen talaði frá Christansborg í dag. skjáskot
Dönsk stjórnvöld hafa ákveðið að taka upp tímabundið landamæraeftirlit við landamærin að Þýskalandi. Þetta kom fram í máli Lars Løkke Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, á blaðamannafundi í dag. „Þetta er stórt skref og það skal skoðast út frá þeim alvarlega flóttamannavanda sem Evrópa fæst við. Þetta er stærsta og flóknasta vandamál sem við höfum séð á þessari öld, sagði Løkke í dag. Frá því í byrjun september hafa rúmlega 91 þúsund flóttamenn komið til Danmerkur, þar af hafa 13 þúsund sótt um hæli í landinu. Flestir flóttamannanna halda þó för sinni áfram til Svíþjóðar og Noregs, að sögn forsætisráðherrans.Sjá einnig: Hert landamæragæsla við Eyrarsundsbrú hefur mikil áhrif á atvinnulíf Hið tímabundna landamæraeftirlit mun fyrst vara í 10 daga með möguleika á framlengingu um aðra 10. Landamæraeftirlitið mun felast í handahófskenndum skoðunum á persónuskilríkjum þeirra sem ferðast fótgangandi á milli landanna er fram kemur í frétt DR um málið. Lögreglan muni því ekki fara fram á að allir sýni skilríki. Flytji einhver einstakling yfir landamærin með ólöglegum hætti má hinn sami búast við sekt upp á 40 þúsund danskar krónur, um 755 þúsund íslenskar krónur. Áður hefur Svíþjóð ákveðið að taka upp landamæraeftirlit við Eyrarsundsbrúnna. Það þýðir að allir, Íslendingar þar með taldir, þurfa að sýna persónuskilríki vilji þeir ferðast milli Svíþjóðar og Danmerkur.
Tengdar fréttir Íslendingar þurfa að sýna vegabréf milli Svíþjóðar og Danmerkur Nýjar reglur um vegabréfaeftirlit á landamærum Svíþjóðar og Danmerkur tóku gildi á miðnætti 4. janúar 2016 10:48 Hert landamæragæsla við Eyrarsundsbrú hefur mikil áhrif á atvinnulíf Skilríkjaeftirliti komið á vegna flóttamannastraums. Talið að lestarferð yfir brúna muni taka tvöfalt lengri tíma. 3. janúar 2016 12:33 Mest lesið Engu um að kenna nema „handónýtu kerfi“ Innlent Sprautan umdeilda sem fólk er tilbúið að borga fyrir út ævina Innlent „Ekki næstum því allir íbúar með þetta app“ Innlent Banaslysið aftur til héraðssaksóknara Innlent Drottningin baðst afsökunar á því að geta ekki boðið betra veður Innlent Koma siglandi og sótt á hestvagni Innlent Grunaði í máli Madeleine McCann sýknaður af öðrum brotum Erlent Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Innlent „Þú hugsar bara: Hver var skotinn?” Erlent „Mikið af slæmum genum í landinu okkar“ Erlent Fleiri fréttir Sjúkrahús í Kaliforníu ákært fyrir að neita óléttri konu um neyðaraðstoð Hlutu Nóbelinn fyrir framlag til vélræns náms Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Grunaði í máli Madeleine McCann sýknaður af öðrum brotum Svaraði spurningum um Netanyahu, Pútín og reynslu af skotvopnum „Þú hugsar bara: Hver var skotinn?” Ekkert lát á aðgerðum Ísraelshers gegn Hamas og Hezbollah „Mikið af slæmum genum í landinu okkar“ Skutu niður eigin dróna yfir Úkraínu „Sölumaður dauðans“ aftur í vopnasölu Úr óveðri í kröftugasta fellibyl ársins á sólarhring Segjast hafa ráðist á rússneskt ríkisútvarp á afmælisdegi Pútín Deila Nóbelnum fyrir uppgötvun á miRNA Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Eitt ár frá upphafi stríðsins á Gasa Íranskur herforingi sagður hafa látist í loftárásum Ísraela Lýsa nóttinni sem skelfilegri Minnkandi virðing fyrir heilbrigðisstarfsfólki á Gasa Ung kona látin eftir skotárás í Ísrael Huldukona í lykilhlutverki í lygilegu ráðabruggi um símboðana „Ein versta nóttin“ í Beirút frá upphafi átaka Sneri aftur á vettvang banatilræðisins Engum verði vísað út við myndbirtingu Minnst sextán látnir í aurskriðum í Bosníu og Hersegóvínu Einn af leiðtogum Hamas lést í loftárás á Líbanon Minnst sjötíu í valnum eftir árás glæpamanna Versnandi ástand í Pokrovsk Trump sagði Pence að hann yrði fyrirlitinn og talinn heimskur Gerðu árás á landamærastöð þar sem tugir þúsunda hafa flúið Sjá meira
Íslendingar þurfa að sýna vegabréf milli Svíþjóðar og Danmerkur Nýjar reglur um vegabréfaeftirlit á landamærum Svíþjóðar og Danmerkur tóku gildi á miðnætti 4. janúar 2016 10:48
Hert landamæragæsla við Eyrarsundsbrú hefur mikil áhrif á atvinnulíf Skilríkjaeftirliti komið á vegna flóttamannastraums. Talið að lestarferð yfir brúna muni taka tvöfalt lengri tíma. 3. janúar 2016 12:33