Gylfi Þór er betri en Rooney, Martial, Barkley, Ramsey og Milner Tómas Þór Þórðarson skrifar 11. október 2016 11:00 Gylfi Þór Sigurðsson er einn af 50 bestu leikmönnum ensku úrvalsdeildarinnar. vísir/getty
Enska dagblaðið The Mirror er búið að velja 50 bestu leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta en niðurtalningin hófst í gær þegar leikmenn í sætum 50-41 voru kynntir til leiks. Þar á meðal er íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Swansea, en hann er 41. besti leikmaðurinn í ensku úrvalsdeildinni að mati The Mirror. Gylfi Þór, sem er búinn að skora tvö mörk fyrir velska liðið á tímabilinu, er sagður skora eða leggja upp mark í þriðja hverjum leik í úrvalsdeildinni síðan hann kom fyrst til Swansea í janúar 2012 á láni frá Tottenham. „Þó Svanirnir séu í vandræðum efast enginn um gæði Gylfa. Hann er oftast maðurinn sem skiptir sköpum fyrir liðið. Leroy Fer hefur farið ágætlega af stað fyrir Swansea en Gylfi er besti leikmaður liðsins,“ segir í umsögn um Gylfa Þór á heimasíðu Mirror.Gylfi Þór er betri en Wayne Rooney að mati The Mirror.vísir/gettyFyrir ofan gamlan samherja Gylfi má vel við una með sitt sæti á listanum en hann er fyrir ofan markahæsta leikmann enska landsliðsins frá upphafi, Wayne Rooney, og Anthony Martial, samherja Rooney hjá Manchester United, sem kostaði ríflega 30 milljónir punda. Hafnfirðingurinn er einnig fyrir ofan Ross Barkley, einn besta leikmann enska landsliðsins í dag sem spilar fyrir Everton, Walesverjann Aaron Ramsey, leikmann Arsenal, sem var í úrvalsliði EM og James Milner, leikmann Liverpool. Þá er Gylfi Þór einnig fyrir ofan Ashley Williams, fyrrverandi samherja sinn hjá Swansea, en miðvörðurinn stakk af til Everton í sumar. Gylfa bauðst reyndar líka að fara til Everton en félagið bauð 25 milljónir punda í íslenska miðjumanninn sem ákvað frekar að semja aftur við Swansea.Leikmenn í sætum 50-41: 41. Gylfi Þór Sigurðsson, Swansea 42. James Milner, Liverpool 43. Ashley Williams, Everton 44. Aaron Ramsey, Arsenal 45. Ross Barkley, Everton 46. Anthony Martial, Manchester United 47. Steven Davis, Southampton 48. Granit Xhaka, Arsenal 49. Jonny Evans, West Bromwich Albion 50. Wayne Rooney, Manchester United
Enski boltinn Mest lesið Mikil sorg hjá norsku frjálsíþróttafjölskyldunni Sport Rose enn í forystu á Masters en Rory náði erni og er við toppinn Golf „Ákváðum að fara út og gefa allt í þetta og sjá hver það myndi leiða okkur“ Sport Grealish og Foden líður ekki vel Enski boltinn Njarðvík og ÍR fögnuðu bæði tveimur sigrum í kvöld Íslenski boltinn Tveir létust fyrir fótboltaleik í Síle Fótbolti Eltihrellir sænsku skíðadrottningarinnar sleppur með sekt og skilorð Sport Stelpurnar földu auglýsingu Rapyd eftir sigurinn Handbolti Yfirlýsing frá landsliðinu: „Förum fram á að Ísrael verði meinuð þátttaka“ Handbolti Beckham: Hvernig voga þeir sér að segja þetta um Viktoríu mína Fótbolti Fleiri fréttir Grealish og Foden líður ekki vel Postecoglou: Það er leki í félaginu Gat farið hvert sem er en valdi að vera hjá okkur „Stöð 2 Sport er enski boltinn“ Cantona telur Ratcliffe vera að eyðileggja Manchester United Salah skrifar undir tveggja ára samning við Liverpool Markvörðurinn skoraði með hjólhestaspyrnu á síðustu stundu Svona verður enski boltinn á Stöð 2 Sport Arnar spilaði með besta „pöbbaliði“ Bretlands Salah nálgast nýjan samning Klopp mætir aftur til Liverpool í næsta mánuði England öruggt með fimm sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili Brady óskaði Willum, Alfonsi og félögum til hamingju Íslendingalið Birmingham upp í B-deild Sjáðu hitt rauða spjaldið sem Gylfi hefur fengið á ferlinum Settu met sem enginn vill eiga Of ungur til að auglýsa veðmál Newcastle heldur áfram að klífa töfluna Sóknarlína Chelsea veldur áhyggjum Van Dijk tjáir sig um samningaviðræðurnar Rekinn sem slakasti stjóri í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Neville hélt þrumuræðu um vélmennaboltann sem er að eyðileggja leikinn Guardiola hneykslaður á söngvum um móður Fodens „Ég horfði á leikinn og sparkaði tebollanum í gólfið“ Ekkert mark í grannaslagnum Chelsea tapaði stigum í markalausum Lundúnaslag Tottenham sendi Southampton niður í b-deildina Fyrsta deildartap Liverpool síðan í september „Ég er 100% pirraður“ Mikið breytt lið Villa vann mikilvægan sigur Sjá meira