Innlent

Bílslys á Kjósarskarðsvegi

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Tveir slösuðust lítillega í slysinu.
Tveir slösuðust lítillega í slysinu. Vísir/Pjetur
Umferðarslys varð á Kjósarskarðsvegi nú á níunda tímanum í kvöld er bíl var ekið á nautgrip. Tveir eru lítillega slasaðir.

Í samtali við Vísi segir varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu að líðan beggja sé þokkaleg. Annar einstaklinganna er lítt eða ekkert slasaður og hinn eitthvað meira. Verið er að flytja hina slösuðu á sjúkrahús í Reykjavík en töluverður fjöldi sjúkra- og lögreglubíla var sendur á slysstað.  

Litlar tafir hafa orðið á umferð vegna slyssins og er Kjósarskarðsvegur opinn nú þegar búið er að flytja hina slösuðu af vettvangi.

Kjósarskarðsvegur er merktur með rauðu á kortinu.Skjáskot/Google Maps



Fleiri fréttir

Sjá meira


×