Innlent

Lögregluaðgerðir gegn hænsnaflokki velkjast um í dómskerfinu

Aðalheiður Ámundadóttir skrifar
Kristján Ingi Jónsson og eiginmaður hans halda umræddan hænsnaflokk en nágrannar þeirra í Mosfellsbæ eiga mjög erfitt með að þola hávaða í hönum flokksins og hafa því beitt sér fyrir því á undanförnum árum að þeir verði fjarlægðir.
Kristján Ingi Jónsson og eiginmaður hans halda umræddan hænsnaflokk en nágrannar þeirra í Mosfellsbæ eiga mjög erfitt með að þola hávaða í hönum flokksins og hafa því beitt sér fyrir því á undanförnum árum að þeir verði fjarlægðir. vísir/vilhelm
Héraðsdómur Reykjavíkur þarf að fjalla efnislega um heimildir til lögregluaðgerða gegn Landnámshænsnaflokki í Mosfellsbæ, samkvæmt niðurstöðu Hæstaréttar í dag.

Kærumál vegna hænsnaflokksins hafa rekist milli stofnanna í stjórnsýslunni í nokkur ár og flakka nú milli dómstiga. Meðal stofnanna sem fjallað hafa um örlög hænsnaflokksins eru bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ, Heilbrigðiseftirlit Kjósarsvæðisins, Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, Héraðsdómur Reykjavíkur og Hæstiréttur Íslands. Ekki sér fyrir endann á deilunni og örlög hænsnaflokksins því enn óráðin.

Málið á sér orðið fimm ára langa sögu. Kristján Ingi Jónsson og eiginmaður hans halda umræddan hænsnaflokk en nágrannar þeirra í Mosfellsbæ eiga mjög erfitt með að þola hávaða í hönum flokksins og hafa því beitt sér fyrir því á undanförnum árum að þeir verði fjarlægðir.



Heilbrigðisnefnd Kjósarsvæðisins kærði hænsnabændurna til lögreglu


Nýjustu vendingar í málinu eru þær að Heilbrigðisnefnd Kjósarsvæðisins kærði hænsnabændurna til Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og óskaði eftir því að lögreglan aflaði dómsúrskurðar til að fjarlægja mætti hænsnaflokkinn. Í kærunni segir meðal annars:

„Að fengnum dómsúrskurði myndi dýraeftirlitsmaður með aðstoð lögreglu handsama umrædda fugla og koma fyrir í þar til gerðum búrum. Í framhaldi er gert ráð fyrir að fuglarnir verði fluttir til dýralæknis til aflífunar.“

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu snéri sér til Héraðsdóms Reykjavíkur með kröfu um húsleit við bæinn og á lóð umhverfis húsnæðið á heimili hænsnabónda, og að hænsnabóndinn afhendi lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu umræddar óskráðar hænur og tvo óleyfishana sem hann heldur.

Héraðsdómur vísaði kröfu lögreglunnar frá dómi, aðallega á þeim grundvelli að umkrafnar heimildir til lögregluaðgerða gegn hænsnaflokknum og eiganda þeirra séu ekki gerðar með því markmiði að handtaka varnaraðila eða rannsaka andlag brots og önnur ummerki eða hafa uppi á munum sem rannsaka á. Þá séu heldur engir rannsóknarhagsmunir í húfi enda ekkert í málinu sem teljist óupplýst og þarfnist rannsóknaraðgerða í þágu lögreglurannsóknar. Þá verði heldur ekki séð að þolandi umkrafinna rannsóknaraðgerða sé grunaður um refsiverða háttsemi, eða í öllu falli ekki grunaður um háttsemi sem varðað geti fangelsisvist.

Lögreglan kærði úrskurðinn til Hæstaréttar, sem felldi úrskurð Héraðsdóms úr gildi á þeim grundvelli ástæðurnar sem tilgreindar eru í úrskurðinum eigi ekki að valda frávísun. Hér vísar Hæstiréttur til þess að umræddar ástæður eigi að leiða til efnislegrar niðurstöðu um beiðni lögreglunnar en ekki frávísun málsins.

Nú fer málið því aftur til Héraðsdóms Reykjavíkur til efnislegrar meðferðar á kröfu lögreglunnar um húsleit og afhendingu hænsnaflokksins.


Tengdar fréttir

Hanar að gala eigandann út af lögbýlaskrá

Bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ vilja að lögbýli í þéttbýli verði aflögð. Þá geti þau beitt sér gegn tveimur landnámshönum sem nágranni í Reykjahverfi segir sígalandi. Eigandi hananna segist ekki gefa lögbýlisréttinn eftir nema Alþingi breyti lögum.

Haninn Kristján hefur ekki galað sitt síðasta

Nágrannar, bæjarfélagið og úrskurðarnefnd um umhverfis- og auðlindamál vilja tvo hana brott af Syðri-Reykjum 3. Eigandi fuglanna telur að lögbýlaskrá hafi verið breytt til að losna við hanana. Nágrannar þreyttir á fimm ára hanagali.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×