Innlent

Batt fyrrum sambýliskonu sína niður og ógnaði henni með hamri

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Maðurinn sagðist hafa verið að reyna að hemja konuna svo hún „yrði til friðs".
Maðurinn sagðist hafa verið að reyna að hemja konuna svo hún „yrði til friðs". Vísir/GVA
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í síðasta mánuði karlmann til átján mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa veist að fyrrum sambýliskonu sinni á heimili hennar og svipt hana frelsi hennar árið 2015. Samverkamaður mannsins var dæmdur í tólf mánaða fangelsi en honum var gefið að sök að hafa svipt karlmann, sem var gestkomandi hjá konunni, frelsi hans og ógnað honum.

Maðurinn var sakaður um að hafa svipt fyrrum sambýliskonu sinni frelsi hennar. Hann var sagður hafa veist að henni, hent henni á sófa og haldið henni fastri með líkamsþunga sínum. Síðan hafi hann, ásamt hinum ákærða, bundið konuna á höndum og fótum og ógnað henni með hamri, slegið hana ítrekað í síðuna, tekið hana kverkataki og þrengt að þannig að hún missti meðvitund.

Hinn maðurinn, sem fékk tólf mánaða fangelsisdóm, var sagður hafa haldið manninum, sem var gestkomandi, afsíðis með því að ógna honum með hamri og hóta honum ofbeldi ef hann skipti sér af. Mennirnir tveir tóku í kjölfarið tölvu, tölvuskjá og verkfæratösku ófrjálsri hendi af heimili konunnar.

Neitaði sök en sagðist bara hafa viljað hemja konuna

Maðurinn neitaði sök og sagðist hafa farið heim til sambýliskonu sinnar fyrrverandi til þess að sækja eigur sínar, en að hún hefði áður brotist inn til hans og stolið frá honum nánast aleigunni. Fyrir dómi sagði hann konuna hafa verið ósátta við heimsóknina og brugðist illa við þegar hann hafi farið að tína saman hluti. Kvaðst hann þá hafa ýtt henni í sófann í stofunni en hvorki lagt á hana hendur né bundið hana.

„Hafi honum, sem væri 120 kg., verið í lófa lagið að skaða brotaþola ef hann hefði viljað. Þá hafi hann beitt röddinni valdsmannslega og notað ljót orð. Hafi hann viljað hemja hana og koma í veg fyrir að skipta sér af því sem hann væri að gera,“ segir í dómnum.

Þekktust ekkert fyrir

Hinn maðurinn sagðist ekkert hafa þekkt meðákærða fyrir, hann hafi einungis boðist til að koma með til konunnar því hann þekkti hana vel. Hann sagðist lítið muna eftir kvöldinu, og sagðist hafa verið á þannig stað í íbúðinni að hann hafi ekki séð fullkomlega það sem fram fór. Honum hafi ekki „staðið alveg á sama“ að vera þarna, fundist það óþægilegt og því ekki lagt sig fram við að fylgjast með því sem fram fór.

Mönnunum tveimur var gert að greiða konunni 850 þúsund krónur óskipt með vöxtum. Dóminn má lesa í heild hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×