Fótbolti

Tap gegn Póllandi hjá U19

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ásdís Karen, markaskorari Íslands, í leik með KR.
Ásdís Karen, markaskorari Íslands, í leik með KR. vísir/eyþór
Íslenska kvennalandsliðið skipað leikmönnum 19 ára og yngri tapaði öðrum leik sínum í milliriðli á EM í Þýskalandi í dag.

Í dag tapaði liðið fyrir Póllandi 2-1. Ísland lenti undir strax á upphafsmínútum leiksins, en Ásdís Karen Halldórsdóttir jafnaði metin á 58. mínútu.

Sigurmark leiksins kom frá Pólverjum níu mínútum fyrir leikslok og lokatölur 2-1, en Ísland er því stigalaust. Þær steinlágu fyrir Þýskalandi 4-0 í fyrsta leik.

Síðasti leikur liðsins fer fram á mánudag þegar liðið mætir Sviss.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×