Lík Ancona fannst á laugardag á árbakka í Missouri af fjölskyldu sem var á veiðum. Ancona var leiðtogi (e. imperial wizard) í samtökunum Traditionalist Knights of the Ku Klux Klan, sem heldur fram að hvíta kynstofninn hafi yfirburði yfir aðra.
Eiginkonu hans Malissa Ancona, sem lýsti eftir eiginmanni sínum á Facebook þegar hans var saknað, og stjúpsonur Ancona, Paul Jinkerson Jr, var birt ákæra í gær. Í frétt BBC segir að þau séu sökuð um að hafa myrt Ancona, yfirhylmingu og að hafa skilið lík eftir á víðavangi.

Talið er að mæðginin hafi svo ekið líkinu um 30 kílómetra leið og komið því fyrir í á nærri bænum Belgrade. Brunaleifar hafa fundist nærri bíl Ancona sem fannst um 50 kílómetrum frá þeim stað þar sem líkið fannst.
Vinnuveitandi Ancona lýsti fyrst eftir honum, eftir að hann skilaði sér ekki til vinnu. Áður en líkið fannst greindi Malissa lögreglu frá því að eiginmaðurinn væri við vinnu utan ríkisins og að hún hugðist sækja um skilnað.
Samtökin KKK eru þekkt fyrir hatur sitt á þeldökkum, en einnig fyrir gyðinga- og hommahatur sem og hatur á ýmsum öðrum minnihlutahópum.