Innlent

Ekið á gangandi vegfaranda í gær

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Pjetur
Lögreglunni barst tilkynninum um umferðarslys á Miklubraut við Reykjahlíð skömmu eftir klukkan ellefu í gærkvöldi. Þar hafði verið ekið á gangandi vegfaranda. Sá var fluttur á slysadeild en samkvæmt dagbók lögreglu er ekki vitað hve alvarleg meiðsl vegfarandans eru.

Þá barst einnig tilkynning um heimilisofbeldi til lögreglustöðvarinnar í Grafarholti eftir miðnætti í nótt. Sá sem var sakaður um ofbeldi var handtekinn og verður rætt við hann í dag.

Fjórir ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Öllum var sleppt að lokinni blóðsýnatökum, en í einum bílnum var farþegi sem var með ætluð fíkniefni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×