Innlent

Þyrlur á tombóluprís

Benedikt Bóas skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF GNÁ.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF GNÁ. vísir/vilhelm
Á fundi Félags skipstjórnarmanna þann 30. desember sl. var samþykkt ályktun þar sem fundarmenn skoruðu á stjórnvöld að nýta þær hagstæðu aðstæður sem eru til staðar í gengismálum til að festa kaup á þyrlum fyrir Landhelgisgæslu Íslands.

„Við blasir að í kjölfar gríðarlegs samdráttar í norskum olíuiðnaði hefur þörf fyrir þyrlur minnkað og verð lækkað. Sýnt hefur verið fram á að útgjöld ríkisins vegna leigu á þyrlum eru meiri en þær afborganir sem inna þyrfti af hendi ef keyptar yrðu þyrlur í stað þeirra sem leigðar eru dýrum dómum,“ segir í ályktun fundarins.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×