Innlent

Þrír fangar misstu meðvitund vegna Spice

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Nýlega misstu þrír fangar á Litla-Hrauni meðvitund vegna neyslu efnisins Spice og voru fluttir á spítala.Forstöðumaður á Litla-Hrauni hefur áhyggjur af neyslu efnisins sem finnst nú í miklum mæli í fangelsinu. Hann segir efnið vera nýtt fyrir föngunum og að þeir kunni ekki að fara með það.

Spice er fíkniefni sem myndast er við efnasmíði til að líkjast áhrifum kannabis. Efnið er þó mun hættulegra en kannabis og hefur það leitt til dauða í fjölmörgum tilvikum erlendis. Nafnið spice er komið til vegna þess að það líkist oft kryddi eða það er blandað í krydd. Það getur þó verið í nánast hvaða form sem er.

Fangaverðir á Litla Hrauni byrjuðu að finna efnið í miklum mæli í haust en áður var afar sjaldgjæft að efnið fyndist í fangelsinu. Í dag finnst efnið reglulega á hrauninu og segir Halldór Valur Pálsson, forstöðumaður á Litla-Hrauni, það vera áhyggjuefni.

„Svo sannarlega er það farið að sjást talsvert hér síðustu mánuði. Við höfum alltaf áhyggjur af allri misnotkun lyfja. Við höfum sérstaklega áhyggjru af þessu efni og höfum verið að glíma við tilvik þar sem menn hafa verið mjög illa vímaðir af þessu og augljóslega sjálfir að læra á efnið og kunna jafnvel ekki að nota það,“ segir Halldór Valur.

Á dögunum misstu þrír fangar meðvitund eftir neyslu efnisins og voru fluttir á spítala. Allt hafi endað vel en atvikin sýndu hve hættulegt Spice geti verið.  

Efnið kemur í fangelsið eftir ýmsum. „Fólk er að bera þetta innvortis ef það er að koma með þetta sjálft. Þá er þetta líka falið í sendingum mjög vandlega. Það er mjög erfitt að finna þetta efni því það getur haft mismunandi lögum og lit og erfitt að nota fíkniefnahunda og þessar hefðbundnu aðferðir til að finna,“ segir Halldór og bætir við að verið sé að þróa aðferðir til að sporna við neyslu efnisins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×