Hluthafarnir fá 5,1 milljarð króna í arð Haraldur Guðmundsson skrifar 17. febrúar 2017 07:30 Eigendur TM eiga von á 1,5 milljarða króna arðgreiðslu. Vísir/Stefán
Stóru tryggingafélögin þrjú ætla að greiða hluthöfum sínum alls 5.123 milljónir króna í arð vegna reksturs þeirra í fyrra. Samanlagður hagnaður Sjóvár, TM og VÍS var þá 6.746 milljónir króna. Samkvæmt tilkynningu Sjóvár til Kauphallar Íslands, sem tryggingafélagið sendi frá sér rétt eftir lokun markaða í gær, nam hagnaður af rekstri þess í fyrra 2.690 milljónum. Það er fjórfalt betri niðurstaða en árið á undan þegar afkoman var jákvæð um 657 milljónir króna. Stjórn Sjóvár hefur lagt til að eigendum félagsins verði greiddur arður sem nemur nær öllum hagnaðinum eða 2.600 milljónum. Afkoma TM var örlítið lakari en hjá Sjóvá eða hagnaður upp á 2.597 milljónir og dróst saman um 230 milljónir milli ára. Tryggingafélagið greindi frá niðurstöðunni nokkrum mínútum á eftir Sjóvá en öll þrjú félögin eru skráð á Aðallista Kauphallar Íslands. Stjórnendur TM vilja greiða sínum hluthöfum 1.500 milljónir í arð og verður tillagan borin undir aðalfund félagsins 16. mars næstkomandi.VÍS rak lestina í gær þegar félagið tilkynnti um 1.459 milljóna hagnað. Niðurstaðan er 617 milljónum lakari en árið 2015. Arðgreiðslutillaga stjórnar VÍS hljóðar upp á 1.023 milljónir króna. Tillögur félaganna þriggja um útgreiðslu arðs í fyrra vöktu mikla athygli í lok febrúar það ár. VÍS vildi þá greiða hluthöfum sínum fimm milljarða króna eða rúmlega tvöfalt hærri upphæð en sem nam hagnaði félagsins árið 2015. Sjóvá hafði rúmri viku áður boðað 3,1 milljarðs króna arðgreiðslu og TM vildi greiða 1,5 milljarða. Samanlagt ætluðu því tryggingafélögin þrjú að greiða hluthöfum sínum 9,6 milljarða króna í arð. Áformin voru harðlega gagnrýnd, meðal annars af ráðherrum, þingmönnum og Ólafíu B. Rafnsdóttur, formanni VR, annars vegar og Runólfi Ólafssyni, formanni Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB), hins vegar. Á endanum lækkaði Sjóvá sína greiðslu í 657 milljónir og VÍS fór niður í 2,1 milljarð. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Ekkert ósvipaður leikur og menn léku í bönkunum fyrir bankahrun“ Atvinnulíf Hlutdeildarlán dugðu fyrir 61 íbúð Viðskipti innlent 97 brauðskráðust frá HR Viðskipti innlent Hvernig verður steypa græn? Samstarf „Fyrsta verk er án gríns að fá mér lýsi og tékka á Vísi“ Atvinnulíf Sif Jakobs: „Ekta demantar eru nú einfaldlega ræktaðir“ Atvinnulíf Fundurinn virðist ekki hafa aukið trú fjárfesta Viðskipti innlent Salmonella í Pekingönd Neytendur Ekki allar verslanir sem hleypi verðlagseftirlitinu að Neytendur Kosningaspenna á vinnustöðum og rifrildi um pólitík Atvinnulíf Fleiri fréttir Hlutdeildarlán dugðu fyrir 61 íbúð 97 brauðskráðust frá HR Fundurinn virðist ekki hafa aukið trú fjárfesta Furðulegt að gjaldtaka taki ekki mið af styrkleika Fjögur erlend fyrirtæki keppa um rekstur Fríhafnarinnar Hagnaður dróst saman um þriðjung og skoða hlutafjáraukningu Bein útsending: Kynna afkomuna og fara nánar yfir breytingarnar Breki áfram formaður Bjarmi sest í stjórnina og Trausti tekur við Tekur við formennsku í hugverkaráði Samtaka iðnaðarins Framkvæmdir hafnar við Búrfellslund Nikótínpúðar gætu hækkað um 300 kall með nýju gjaldi Ætla að sækja einn og hálfan milljarð frá skemmtiferðaskipum Vaxtatekjur Íslandsbanka drógust saman milli ára Fjögur félög Bergvins gjaldþrota Gera langtímasamning við eitt stærsta fyrirtæki Noregs Guðjón og Kristinn Þór nýir sviðsstjórar hjá VSB Fimm milljarðar í tekjur af vöxtum á mánuði Skerða líka raforku fyrir norðan og austan Miklu fleiri vilja hlutdeildarlán en fá Ólöf til liðs við Athygli Atvinnuleysi tvöfaldaðist í september Lög um Bankasýsluna verði afnumin Tekjur jukust um sjö prósent milli ára Hagnaður dregst saman um tæpa tvo milljarða króna Carbfix hlaut Nýsköpunarverðlaunin Bein útsending: Markaðsmál í brennidepli á nýsköpunarþingi Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins – Atvinnulífið leiðir Oculis rauk upp eftir tilkynningu Nýr framkvæmdastjóri á Oche Sjá meira