Innlent

Sýknaður af líkamsárás á hendur sambýliskonu sinni

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Konan hlaut væga bólgu á enni og roða á húð og hálsi. Maðurinn sagði höfuð þeirra hafa skollið saman af slysni - þau hafi verið að togast á um fatnað hans, hann hefði beygt höfuð sitt eftir fötum með fyrrgreindum afleiðingum.
Konan hlaut væga bólgu á enni og roða á húð og hálsi. Maðurinn sagði höfuð þeirra hafa skollið saman af slysni - þau hafi verið að togast á um fatnað hans, hann hefði beygt höfuð sitt eftir fötum með fyrrgreindum afleiðingum. Vísir/GVA
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag karlmann af ákæru um líkamsárás á hendur sambýliskonu sinni. Maðurinn var sakaður um að hafa veist að konunni í viðurvist ungs sonar hennar.

Maðurinn, sem neitaði sök, var ákærður fyrir að hafa tekið konuna tvívegis hálstaki og skallað hana í ennið. Þá var hann ákærður fyrir að hafa ógnað og sýnt af sér vanvirðandi háttsemi og ruddalegt athæfi gagnvart syni hennar, sem átti að hafa orðið vitni að árásinni.

Maðurinn sagðist fyrir dómi hafa lent í átökum við konuna og ýtt við henni, en neitaði að hafa tekið hana hálstaki. Sagði hann höfuð þeirra hafa skollið saman fyrir slysni. Átökin hefðu átt sér stað inni í svefnherbergi en á meðan hefðu vinir konunnar verið í stofunni að horfa á sjónvarp. Þá hafi sonur konunnar verið inni í stofu og eldhúsi á meðan þessu stóð. Sjálfur sagðist hann hafa hlotið nokkra áverka eftir átökin, bæði hafi hann verið marinn og klóraður um hálsinn.

Eitt vitni sagðist hafa séð manninn taka konuna hálstaki og skella henni utan í hurð á meðan annað vitni kvaðst ekki hafa orðið vart við nein handalögmál.

Í niðurstöðu dómsins segir að ljóst sé að til einhverra átaka hafi komið. Framburður mannsins hafi verið stöðugur en framburður konunnar ekki. Þá beri vitni ekki með sama hættu um atvik. Því leiki verulegur vafi á að atvik hafi verið með þeim hætti sem manninum var gefið að sök í ákæru. Þá sé jafnframt óljóst hvort sonur konunnar hafi orðið vitni að því sem fram fór á milli fólksins og var maðurinn því sýknaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×