Innlent

Sjáðu myndir ársins 2016

Birgir Olgeirsson skrifar
Þessi mynd Heiðu Helgadóttur var valin mynd ársins.
Þessi mynd Heiðu Helgadóttur var valin mynd ársins. Heiða Helgadóttir
Heiða Helgadóttir, sjálfstætt starfandi blaðaljósmyndari, á fjórar af átta bestu myndum ársins 2016. Þetta var tilkynnt við opnun á árlegri sýningu íslenskra blaðaljósmyndara í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag.

Veitt voru verðlaun í átta flokkum en Heiða á mynd ársins, fréttamynd ársins, myndaröð ársins og daglegt líf mynd ársins. 

Kristinn Magnússon á bestu portrait mynd ársins, Vilhelm Gunnarsson á Fréttablaðinu á bestu umhverfismynd ársins og íþróttamynd ársins og Rut Sigurðardóttir tímaritamynd ársins.

Hér fyrir neðan er hægt að sjá myndirnar: 

Mynd ársins 2016: Heiða Helgadóttir. Morteza Songolzadeh frá Íran þurfti að flýja heimaland sitt eftir að hann tók upp kristna trú. Hann kom til Íslands í ágúst 2015. Ári seinna fékk hann þeir fréttir að það ætti að flytja hann úr landi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Toshiki Toma, prestur innflytjenda, stendur fyrir bænastund í Laugarneskirkju í hverri viku.Heiða Helgadóttir
Tímaritamynd ársins nefnist ballettær.Rut Sigurðardóttir
Fréttamynd ársins: Tveir ungir hælisleitendur frá Íran voru dregnir út úr Laugarneskirkju í sumar með lögregluvaldi og sendir til Noregs. Toshiki Toma, prestur innflytjenda, og Kristín Þórunn Tómasdóttir, sóknarprestur Laugarneskirkju, ákváðu að opna dyr kirkjunnar og veita hælisleitendunum skjól um nóttina.Heiða Helgadóttir
Daglegt líf mynd ársins: Ingibjörg Sölvadóttir, 28 ára rennismiður, tók þátt í módelfitness í fyrsta skipti, hún undirgekkst harðar æfingar, strangt mataræði og einangrun til að stíga á svið einn dag. Fyrir keppnina eru keppendur mældir og vigtaðir og keppnisfötin tekin út svo allt sé í samræmi við reglur.Heiða Helgadóttir
Íþróttamynd ársins 2016: Leikmennirnir tryllast eftir 2-1-sigur á Englandi í sextán liða úrslitum á EM.Vilhelm Gunnarsson
Portrait mynd ársins 2016: Guðni Th. Jóhannesson áður en hann var kjörinn forseti Íslands.Kristinn Magnússon
Umhverfismynd ársins 2016: Esjan í vetrarskrúða.Vilhelm Gunnarsson
Myndaröð ársins 2016: Morteza Songolzadeh frá Íran þurfti að flýja heimaland sitt eftir að hann tók upp kristna trú. Hann kom til Íslands í ágúst 2015. Ári seinna fékk hann þeir fréttir að það ætti að flytja hann úr landi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.Heiða Helgadóttir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×