Þrenna á aðeins tíu mínútum hjá Alberti í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. mars 2017 20:53
Albert Guðmundsson skoraði þrennu fyrir unglingalið PSV Eindhoven sem vann fimm marka útisigur á FC Eindhoven, 5-0, í hollensku b-deildinni í kvöld. Þetta var önnur þrenna hans á sautján dögum. Yngra lið Psv Eindhoven tekur þátt í hollensku b-deildinni og það er ljóst að íslenski unglingalandsliðsmaðurinn hefur verið duglegur að minna á sig í síðustu leikjum. Albert kom PSV Eindhoven í 1-0 á 39. mínútu og bætti svo við öðru marki á 42. mínútu. Tvö mörk á aðeins þremur mínútum undir lok fyrri hálfleiksins. Albert var hinsvegar ekki hættur og fullkomnaði þrennuna sína eftir aðeins fjögurra mínútna leik í seinni hálfleiknum. Hann var þar með búinn að skorað þrjú mörk á aðeins tíu mínútum. Albert hefur nú skorað átta mörk í síðustu fimm leikjum og alls tólf mörk í deildinni á tímabilinu. Albert skoraði einnig tvö mörk í 2-0 sigri á NAC Breda 20. febrúar og þrennu í 4-1 sigri á RKC Waalwijk 24. febrúar. Albert var ekki búinn að skora í síðustu tveimur leikjum ekki frekar en liðsfélagar hans. Hann bætti hinsvegar úr því í kvöld og hefur nú skorað átta af síðustu ellefu mörkum liðsins í hollensku b-deildinni. Hann var með átta af níu áður en liðið bætti við tveimur mörkum í blálokin í kvöld. Albert skipti hreinlega bara um gír eftir að hann heim frá Kína þar sem hann lék sinn fyrsta A-landsleik í janúarmánuði. Afar ánægjulegt að sjá ungan strák nýta sér þannig meðbyr á svona glæsilegan hátt.3 minutes, 2 goals @snjallbert pic.twitter.com/zqtlZD3zjb— PSV International (@psveindhoven) March 13, 2017 Full time! PSV U21 beat FC Eindhoven 5-0. Gudmundsson 0-1 Gudmundsson 0-2 Gudmundsson 0-3 Locadia 0-4 Lonwijk 0-5 pic.twitter.com/Fh4vLYQMHn— PSV International (@psveindhoven) March 13, 2017
Fótbolti Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Atli og Eiður í KR Fótbolti Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Fótbolti Chicago Bears leita nýrra leiða til að tapa leikjum Sport FH-ingar kynntu Birki og Braga Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Tími fyrir endurheimt Sport Fleiri fréttir Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Sjá meira