Allir gleymdu körfuboltareglunum á sama tíma | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. júlí 2017 16:00 Rússinn Daria Kurilchuk með boltann í leiknum. Mynd/FIBA
Einn misskilningur ruglaði hreinlega alla í ríminu í leik í úrslitakeppni HM 19 ára kvenna í körfubolta. Leikurinn með þessum eina risastóra misskilningi var á milli Rússland og Spánar í riðlakeppninni en rússneska liðið er eitt allra sterkasta liðið í keppninni og vann alla leiki sína í riðlinum. Það voru hinsvegar Rússarnir sem enduðu á því að hjálpa mótherjum sínum með óvenjulegum hætti í þessum leik. Rússnesku stelpurnar misstu boltann útaf og allir bjuggust við að spænska liðið fengi innkastið. Dómarinn afhendi hinsvegar Rússum boltann og það ótrúlega gerðist. Rússneska liðið brunaði í sókn á sína eigin körfu. Hraðaupphlaupið gekk fullkomlega upp og það endaði með galopnu þriggja stiga skoti sem fór rétta leið. Vandamálið var bara að Rússarnir voru að skora í eigin körfu. Dómararnir stöðvuðu þá leikinn og upp hófst reikistefna um hvað hafði í raun gerst. Dómararnir höfðu að því virtist tvo möguleika í stöðunni en völdu hvorugan. Þeir hefðu getað endurtekið innkastið og látið rétt lið byrja með boltann. Þeir hefðu líka geta dæmt yfir miðju á rússneska liðið en þær fóru með boltann aftur fyrir miðju áður en þær smelltu niður þessum þristi. Dómararnir ákváðu hinsvegar að dæma sjálfskörfuna gilda og rússnesku stelpurnar byrjuðu aftur með boltann en nú undir eigin körfu. Spænsku stelpurnar fengu þá aðeins tvö stig þrátt fyrir að skotið hafi verið tekið fyrir utan þriggja stiga línuna. Karfan var skráð á fyrirliðann Luciu Alonso. Mistökin komu reyndar ekki að sök því Rússland vann leikinn örugglega 77-58. Það má sjá þetta ótrúlega atvik hér fyrir neðan.
Körfubolti Mest lesið Áhorfandi fékk sex milljónir fyrir ótrúlegt skot Fótbolti „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Enski boltinn „Væri gaman að spila við þá í hverri einustu viku” Íslenski boltinn Leikurinn ekki stöðvaður þó svo maður hafi dáið í stúkunni Enski boltinn Fær Njarðvík frekar stimpilinn? Íslenski boltinn Stillti upp fartölvu til að mótmæla Fótbolti Dagskráin í dag: Stúkan tæklar stóru málin og Guðrún gæti orðið meistari Fótbolti Uppgjörið: Valur - Víkingur 2-3 | Draumamark Tariks kom Víkingi á toppinn Íslenski boltinn Ólæti vörpuðu skugga á dramatískan borgarslag Fótbolti Simeone kennir Courtois um ólætin Fótbolti Fleiri fréttir Tryggvi með tíu í fyrsta leik Valsmenn neituðu að veita viðtöl „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Martin magnaður í fyrsta sigrinum „Einhver náttúrulegasta þrenna sem ég hef séð“ Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Uppgjörið: Keflavík - Þór Ak. 82-86 | Þór skellti meisturunum Knicks og Timberwolves opna leikmannamarkaðinn með látum Ísold eltir annan draum: „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka í lífinu“ Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Sjá meira