Innlent

Ákærðir fyrir að berja mann í höfuðið með röri

Samúel Karl Ólason skrifar
Ákæran verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni.
Ákæran verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni. Vísir/Vilhelm
Tveir menn hafa verið ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás við Iðufell í Reykjavík. Mennirnir tveir sem eru á þrítugsaldri og á fimmtugsaldri eru sakaðir um að hafa framið árásina í maí fyrir tveimur árum. Þetta kemur fram á vef Ríkisútvarpsins.



Þar segir að ákæran verði þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni.

Sá sem varð fyrir árásinni fékk heilahristing og bólgu og mar í kringum bæði augun.

Mennirnir eru sagðir hafa ráðist á hann og barið hann bæði í höfðið og víðs vegar um líkamann. Þar að auki hafi þeir tekið hann hálstaki og barið hann og sparkað í hann þar sem hann lá á jörðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×