Innlent

Fimm á slysadeild eftir árekstur

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Frá vettvangi.
Frá vettvangi. Mynd/Aðsend
Fimm voru fluttir á slysadeild með minniháttar meiðsli eftir tveggja bíla árekstur á Reykjanesbrautinni.

Áreksturinn varð um klukkan fimm í dag en samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu varð áreksturinn við afleggjarann að Krísuvík.

Lögregla starfar enn á vettvangi og má búast við umferðartöfum þangað til að þeirri vinnu lýkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×