Innlent

Skipar nefndir til að meta umfang áreitni, ofbeldis og eineltis

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra.
Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra. Vísir/Ernir

Félags- og jafnréttismálaráðherra hefur ákveðið að skipa nefnd til að meta umfang kynferðislegrar áreitni, kynbundinnar áreitni eða ofbeldis, auk eineltis á vinnumarkaði. Nefndin er skipuð til að bregðast við brýnni þörf fyrir aðgerðir sem umfjöllun um þessi mál í samfélaginu að undanförnu hefur leitt í ljós. Svo segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.

„Í fjölmiðlum undanfarið hefur átt sér stað umræða í samfélaginu þar sem fjöldi fólks, fyrst og fremst konur, hefur greint frá þeirri reynslu að hafa sætt kynferðislegri áreitni eða ofbeldi á vinnustað. Auk þess að meta umfang vandans er nefndinni ætlað að skoða aðgerðir og viðbrögð atvinnurekenda til að koma í veg fyrir athæfi sem þetta á vinnustöðum og hvernig tekið er á málum sem þessum ef upp um þau kemst eða grunur er um slík brot eigi sér stað,“ segir í tilkynningunni.

Gert er ráð fyrir að nefndin standi fyrir þríþættri rannsókn þar sem könnuð verði reynsla starfsmanna af kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni eða ofbeldi á vinnustöðum auk eineltis, ýmist sem þolendur, vitni eða gerendur.

„Jafnframt verði kannað meðal vinnuveitenda hvernig þeir hafa brugðist við framangreindum aðstæðum á vinnustöðum, þar á meðal til hvaða aðgerða hafi verið gripið. Þá verði kannað meðal vinnuveitenda hvort þeir hafi gert skriflega áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustöðum sínum, þ.m.t. áætlun um forvarnir þar sem meðal annars komi fram til hvaða aðgerða skuli gripið til að koma í veg fyrir framangreindar aðstæður á vinnustöðum þeirra og til hvaða aðgerða skuli gripið ef komi fram kvörtun, ábending eða rökstuddur grunur um aðstæður eða brot af þessum toga.“

Í starfshópinn verði skipaðir fulltrúar frá samtökum launafólks og atvinnurekenda, Jafnréttisstofu, Vinnueftirliti ríkisins, fjármála- og efnaghagsráðuneytinu og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Félags- og jafnréttismálaráðherra mun skipa formann nefndarinnar að því er segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×