Fyrrverandi forseti Jemen sagður hafa verið drepinn Atli Ísleifsson skrifar 4. desember 2017 13:30 Ali Abdullah Saleh var forseti Norður-Jemen á árunum 1978 til 1990 og var þá gerður að fyrsta forseta Jemen.
Ali Abdullah Saleh, fyrrverandi forseti Jemen, hefur verið drepinn í höfuðborginni Sanaa. Frá þessu var greint á útvarpsstöð Húta í landinu fyrr í dag.Al Jazeera greinir frá því að myndir af því sem sagt er vera lík Saleh hafi farið í dreifingu á samfélagsmiðlum fyrr í dag. Má þar sjá vopnaða menn notast við lak til að flytja líkið Saleh upp á pall pallbíls. Fréttirnar hafa enn ekki fengist staðfestar frá óháðum aðilum, en talsmaður flokks Saleh sagði fyrr í dag að forsetinn hafi stýrt sveitum í baráttunni gegn uppreisnarmönnum Húta í Sanaa. Al Jazeera segir þó að forsetinn hafi ekki birst opinberlega frá því að fréttir af láti hans birtust fyrst. Saleh var forseti Norður-Jemen á árunum 1978 til 1990 og var þá gerður að fyrsta forseta Jemen. Hann gegndi embættinu til ársins 2012 þegar varaforsetinn Abd Rabu Mansur Hadi tók við. Saleh og stuðningsmenn hans höfðu, þar til í síðustu viku, barist við hlið Húta gegn forsetanum Hadi og sveitum hans, allt frá upphafi borgarastríðsins í landinu árið 2015. Í síðustu viku blossuðu svo upp deilur á milli Saleh og Húta, meðal annars um yfirráð yfir stærstu mosku Sanaa, sem leiddu til blóðugra átaka í höfuðborginni. Er áætlað að 125 manns hafi látið lífið og á þriðja hundrað særst síðan á miðvikudag. Sameinuðu þjóðirnar áætla að tæplega níu þúsund manns hafi fallið og um 50 þúsund særst í átökum í Jemen síðan í mars 2015.
Mest lesið Stór hópur fullorðins fólks á Íslandi lifir eins og börn Innlent Banaslys á Suðurlandsvegi eftir grjóthrun Innlent Spyr um ábyrgð skólastjóra í stóra skómálinu Innlent Hvetja landsmenn til að búa sig undir neyðarástand Innlent „Hér er verið að saka fólk um alvarlega þætti“ Innlent Menningarslys verði frumvarpið samþykkt Innlent Suðurlandsvegi lokað vegna alvarlegs slyss Innlent Vilja úthýsa einkaþotum og þyrlum Innlent Trump „mjög reiður“ út í Pútín Erlent Reksturinn í uppnámi og uppsagnir fyrirhugaðar Innlent Fleiri fréttir Færri eru ánægðir með Trump og efnahagsmálin Sakar Rússa um tugi þúsunda stríðsglæpa „Ekki að grínast“ um þriðja kjörtímabilið Einn sagður hafa drepið hina tvo Hafa enn ekki náð utan um skaðann í Mjanmar ESB sagt íhuga að útvatna loftslagsmarkmið sín Morð í Svíþjóð ekki eins fá í áratug Le Pen sakfelld fyrir fjársvik og bannað að bjóða sig fram til forseta Fordæma árás á sjúkraliða Þrír fundust látnir í Noregi „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Trump „mjög reiður“ út í Pútín Þýsk geimflaug hrapaði eftir hálfa mínútu Erfitt að átta sig á áformum Trumps „Sonur minn hjálpar mér að halda áfram“ Fundu fólk í rústunum sextíu klukkustundum eftir skjálftann Kærir Musk til hæstaréttar vegna milljónagjafa til kjósenda „Við náum Grænlandi, hundrað prósent“ Leita enn og vara við miklum skorti á sjúkravörum Ný ríkisstjórn mynduð í Sýrlandi Hamasliðar tilbúnir að frelsa gísla fyrir vopnahlé Mette Frederiksen heldur til Grænlands Hundruð þúsunda mótmæla og 1900 handteknir Fleiri en 1600 látnir í Mjanmar Fyrrverandi kærasta Tate sakar hann um kynferðisbrot Heimsókn Vance óviðeigandi og óviðunandi Utanríkisráðherra Danmerkur: „Svona talar þú ekki við nána bandamenn þína“ Tala látinna komin yfir þúsund Segir orðræðu varaforsetans ósanngjarna Á annað hundrað látnir í Mjanmar Sjá meira