Innlent

Katrín segir hressilegar umræður hafa átt sér stað á fundi VG

Birgir Olgeirsson skrifar
Katrín Jakobsdóttir ræðir við fjölmiðlmenn að loknum flokksráðsfundi Vinstri grænna.
Katrín Jakobsdóttir ræðir við fjölmiðlmenn að loknum flokksráðsfundi Vinstri grænna. Vísir/Anton Brink
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, er ánægð með þann stuðning sem myndaðist í flokksráði Vinstri grænna þess efnis að flokkurinn gangi í ríkisstjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins.

Katrín sagði þetta í viðtali í kvöldfréttum Sjónvarpsins að loknum fundi flokksráðs Vinstri grænna þar sem tillagan var samþykkt. Níutíu og þrír greiddu atkvæði. Af þeim sögðu sjötíu og fimm já, fimmtán sögðu nei og voru þrír seðlar auðir.

Katrín sagði forsvarsmenn flokksins hafa kynnt niðurstöðuna af meirihlutaviðræðunum við Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn og aðdraganda málsins. Hún sagði hressilegar umræður hafa átt sér stað á fundi VG þar sem fólk var ekki á einu máli en að lokum fékkst yfirgnæfandi stuðningur fyrir málinu.

Hún sagði fólk hafa tjáð sig opið á fundinum, einhverjir hafi lýst andstöðu sinni við þessu ríkisstjórnarsamstarfi en ætla þó að vera áfram í hreyfingunni.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Andrés Ingi Jónsson, þingmenn Vinstri grænna, lýstu því yfir fyrr í kvöld að þau myndu ekki samþykkja ríkisstjórnarsáttmálann. Katrín sagðist vera ósammála þeim, hún telur niðurstöðuna af meirihlutaviðræðunum vera góða þar sem náð var miklum árangri. Vinstri græn muni þar að auki leiða þessa ríkisstjórn.

„Það tel ég gríðarlega góða niðurstöðu, þannig að auðvitað er ég ósammála þeirra niðurstöðu,“ sagði Katrín við RÚV.

Hún sagði afstöðu Rósu og Andrésar veikja stöðu Vinstri grænna í ríkisstjórninni, sér í lagi þegar kemur að skipan þingnefnda, en afstaða þeirra hefði legið fyrir og ákveðið var að ljúka þessum viðræðum þrátt fyrir það. Staðan muni skýrast betur á þingflokksfundi á morgun.


Tengdar fréttir

Andrés og Rósa Björk styðja ekki sáttmálann

Andrés Ingi Jónsson og Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmenn Vinstri grænna, lýstu því yfir á flokksráðsfundi flokksins að þau gætu ekki stutt stjórnarsáttmála VG, Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins.

Vinstri græn samþykkja stjórnarsáttmálann með miklum meirihluta

Flokksráð Vinstri grænna samþykkti ríkisstjórnarsáttmála VG, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sem borinn var upp á fundi ráðsins í kvöld. Fátt er því nú til fyrirstöðu að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur taki við völdum á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×