Innlent

Leit lokið að konu sem týndist á Vatnsleysuströnd

nína hjördís þorkelsdóttir skrifar
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd/Landsbjörg
Björgunarsveitir voru kallaðar út á áttunda tímanum í kvöld eftir að tilkynning barst um konu sem var saknað skammt frá Vogum á Vatnsleysuströnd. Hún er nú fundin. 

Að sögn Guðmundar Helga Önundarsonar hjá Björgunarsveit Suðurnesja gekk leitin vel og fannst konan um níuleytið. Þyrla Landhelgisgæslunnar var í viðbragðsstöðu en ekki reyndist þörf á að kalla hana út til liðsauka. 

Konan var við góða heilsu þegar hún fannst og þarfnaðist ekki aðhlynningar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×