Sameining komi í veg fyrir upprisu ISIS 2.0 Samúel Karl Ólason skrifar 11. júlí 2017 15:30 Frelsun Mosul fagnað. Vísir/AFP
Æðsti yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Írak segir baráttuna gegn Íslamska ríkinu ekki vera lokið. Mikilvægt sé að sameina þjóðina til að ganga frá og koma í veg fyrir upprisu ISIS á nýjan leik. Nauðsynlegt sé að yfirvöld í Baghdad, sem stjórnað er af sjítum, sættist við súnníta Írak. „Ef við eigum að koma í veg fyrir upprisu ISIS 2.0, þá þarf írakska ríkisstjórnin að breyta verulega til,“ segir hershöfðinginn Stephen Townsend. Deilur milli súnníta og sjíta voru verulega stór þáttur í upprisu Íslamska ríkisins og hernámi þeirra á stórum svæðum í norðanverðu Írak. Samtökin nýttu sér reiði súnníta gagnvart yfirvöldum í Baghdad og var vígamönnum ISIS víða tekið sem frelsurum. Í fyrstu. Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa sakað Íraka og bandamenn þeirra gegn Íslamska ríkinu, þar af aðallega Bandaríkin, um mikið mannfall almennra borgara og að beita þungavopnum í byggðum hverfum Mosul. Talsmaður bandalagsins sagði BBC að skýrsla Amnesty væri óábyrg og móðgun.Í skýrslunni segir að loftárásir og stórskotaliðsárásir Íraka og bandamanna þeirra hafi verið gerðar þrátt fyrir að vígamenn ISIS væru að skýla sér að baki almennings. Sókninni hefði ekki verið breytt til þess að taka almenna borgara með í reikninginn. Flestir íbúar Mosul eru súnnítar. Í skýrslunni eru ódæði ISIS-liða einnig tíunduð. Þar á meðal eru þeir sagðir hafa myrt þúsundir borgara sem reyndu að flýja úr borginni og hafa hengt lík upp í rafstaura, öðrum til viðvörunar.
Mið-Austurlönd Mest lesið Egill syrgir brottvísun vina sinna Innlent Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Innlent Viðsnúningur í frönsku þingkosningunum Erlent Segir Akranes verða svefnbæ Innlent Útilokar ekki kosningu en Jón vill kjósa áður en það verður of seint Innlent „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Reikna með að hefja formlegar sameiningarviðræður í haust Innlent Þyrla kölluð út vegna bifhjólaslyss á Vestfjörðum Innlent N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri Innlent Allt að tuttugu stiga hiti í dag Veður Fleiri fréttir Viðsnúningur í frönsku þingkosningunum Frakkar ganga til sögulegra kosninga Sextán drepnir í loftárás á skóla Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Nefna Mílanóflugvöll í höfuðið á Berlusconi Beryl lék Mexíkó grátt Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Sjá meira