Árangurinn felst í samstöðu Jón Hákon Halldórsson skrifar 3. febrúar 2018 07:00 Forseti ASÍ segir það alveg klárt mál að það sé í höndum félagsmanna VR að taka ákvörðun um úrsögn úr ASÍ. Samstaða stéttarfélaganna sé lykilatriði til þess að ná árangri í hagsmunabaráttu fyrir félagsmenn. Mynd/samsett „
Það hefur alltaf verið þannig að slagkraftur okkar gagnvart atvinnurekendum og stjórnvöldum ræðst af samstöðu á vettvangi launafólks en ekki sundrungu,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir sterklega koma til greina að félagið segi sig úr ASÍ. Gylfi segir það gefa augaleið að slík ákvörðun myndi hafa mikil áhrif á stöðu félagsmanna Alþýðusambandsins og þar með VR. „Það hefur verið innri umræða árum saman um baráttuaðferðir. Það er ekkert nýtt og það er ekkert að því. Þetta er hreyfing sem nærist á hugsjónum og hjartalagi. En það sem ræður úrslitum er geta hreyfingarinnar og aðildarfélaganna til að sameinast um áherslur og fara saman fram með þær,“ segir Gylfi. Hann segist ekki gagnrýna það þegar menn tali af hugsjón. „En ég hef ekki enn orðið var við það með hvaða hætti þessir einstaklingar ætla að tala okkur inn í samstöðu. Þeir eru mjög iðnir við það að tala okkur inn í sérstöðu. En það er ekki í sérstöðunni sem við náum árangri. Það er í samstöðunni.“ Fréttablaðið sagði frá því í gær að til skoðunar væri hvort hægt sé að taka ákvörðun um úrsögn VR úr ASÍ án undangenginnar atkvæðagreiðslu á meðal félaga. Formaðurinn Ragnar Þór sagði að VR myndi þá segja sig úr Landssambandi verslunarmanna og VR sé aðili að ASÍ í gegnum Landssambandið. Þá yrði látið reyna á málið fyrir félagsdómi „Það er auðvitað bara sjálfstæð ákvörðun hvort VR vill vera í Landssambandi verslunarmanna eða ekki. En ákvörðun um það er í höndum félagsmanna VR. Að sama skapi er ákvörðun um það að vera í Alþýðusambandinu sjálfstæð ákvörðun og það fer líka eftir afstöðu félagsmanna VR. Þessar reglur eru algjörlega klárar og um þetta fjallað í 17. grein laga ASÍ,“ segir Gylfi. Þetta séu skýr ákvæði og þau séu aldargömul. Eftir að frétt Fréttablaðsins birtist í gær hafði Ragnar Þór samband við blaðið með tölvupósti. Sagði hann að hugsunin með því að láta reyna á málið fyrir félagsdómi væri alls ekki að sniðganga lýðræðið innan VR, heldur láta reyna á reglur ASÍ um úrsögn. „Við ræddum einungis þennan möguleika til að láta reyna á það fyrir dómi hvort lög ASÍ geti verið æðri okkar lögum en að sjálfsögðu verður svona ákvörðun aldrei tekin nema með meirihluta stuðnings okkar félaga. Þannig að engar líkur eru á að endanleg ákvörðun um úrsögn verði tekin án lýðræðislegrar niðurstöðu um málið,“ sagði Ragnar síðan á Facebook. Ítarlegri umfjöllun um verkalýðshreyfinguna er í helgarkafla blaðsins.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Málum vegna dyrabjöllumyndavéla muni fjölga Innlent Troðfullt á bílastæði við þjóðveginn og löng bið fram undan Innlent „Þó nokkur aðgerð“ að sækja göngumanninn sem steig í hver Innlent Rannsaka möguleika til kolefnisförgunar í Hvalfirði Innlent Farangurinn varð eftir og þurfa að keyra hringinn til að ná í hann Innlent Vatnshæð lækkar áfram en hlaupið ekki alveg búið Innlent Síðasta ávarp Guðna í embætti: „Þið eruð geggjuð!“ Innlent Mikið undir í forsetakosningum Venesúela Erlent Hringvegurinn opinn á ný Innlent Smíðaði stærstu skeifu heims úr 2.852 skeifum Innlent Fleiri fréttir Vatnshæð lækkar áfram en hlaupið ekki alveg búið Málum vegna dyrabjöllumyndavéla muni fjölga Síðasta ávarp Guðna í embætti: „Þið eruð geggjuð!“ Rannsaka möguleika til kolefnisförgunar í Hvalfirði „Þó nokkur aðgerð“ að sækja göngumanninn sem steig í hver Hringvegurinn opinn á ný Öll fjögur hlaupin undir Mýrdalsjökli komið að óvörum RAX flaug yfir jökulhlaupssvæðið Smíðaði stærstu skeifu heims úr 2.852 skeifum Troðfullt á bílastæði við þjóðveginn og löng bið fram undan Farangurinn varð eftir og þurfa að keyra hringinn til að ná í hann Vatnsflaumur og vísindarannsóknir í Hvalfirði Kunningi lögreglunnar grunaður um alvarlega líkamsárás Þyrlan í vandræðum með að sækja mann sem steig í hver Hefur áhyggjur af viðhorfi Viðskiptaráðs Sækja slasaðan göngumann í Kerlingarfjöll Ferðamenn festu bíl á Fjallabaksleið nyrðri Leita skýringa á stærð hlaupsins sem er nánast búið Hringvegurinn líklega lokaður til kvölds „Það taka þessu allir með stóískri ró“ Jökulhlaup, deilur um grunnskólamál og sundkappi Vegagerðin og deilur um menntakerfið Frumvarp um sviptingu verndar lítur dagsins ljós í haust Mótmæla brottvísun Venesúelamanna við Hallgrímskirkju Hlaupið minnkað verulega en jökullinn skelfur enn Gæti orðið ófært í Þórsmörk Kýldi leigubílstjórann og borgaði ekki Lögreglan lýsir eftir My Ky Le Ekkert bendi til að hlaupið sé afleiðing eldgoss Halla verði að upplýsa um bílakaupin Sjá meira