Napoli á toppinn eftir sigur Dagur Lárusson skrifar 10. febrúar 2018 21:45 Liðsmenn Lazio fagna. vísir/getty Napoli komst á toppinn á ítölsku deildinni í kvöld með stórstigri á Lazio 4-1 en liðið komst þar með yfir Juventus. Það var hinsvegar Lazio sem byrjaði leikinn mun betur og skoraði Stefan de Vrij strax á 3. mínútu leiksins. Það tók heimamenn um fjörtíu mínútur að jafna leikinn en það gerði Jose Callejon á 43. mínútu og var staðan 1-1 í hálfleik. Í seinni hálfleiknum tóku liðsmenn Napoli öll völdin á vellinum og skoruðu strax á 54. mínútu en þá var það Wallace sem varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Mario Rui skoraði þriðja mark Napoli á 56. mínútu áður en Dries Mertens gerið endanlega út um leikinn á 73. mínútu. Lokatölur voru 4-1 fyrir Napoli og sem fyrr segir er Napoli komið á toppinn með 63 stig á meðan Lazio er í 3. sæti með 46 stig. Fótbolti
Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn Íslenski boltinn
Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn
Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn Íslenski boltinn