Sýrlensku samtökin Hvítu hjálmarnir greindu frá því að 24 hafi farist í árás á Marj, þar af fimm konur og allnokkur börn. Tíu almennir borgarar til viðbótar hafi farist í árásum á Arbin og Misraba. Samtök aðgerðasinna sögðu alls 77 hafa farist en bresku samtökin Syrian Observatory for Human Rights sögðu töluna vera fimmtíu, þar af þrettán börn.
Að minnsta kosti 127 fórust, þar á meðal tuttugu börn, í loftárásum mánudagsins sem var einn sá versti í þrjú ár. Alls hafa því að minnsta kosti 194 farist frá því Assad-liðar settu aukinn þunga í árásir sínar á sunnudag og um 850 særst, að því er Syrian Observatory for Human Rights greinir frá.
Sýrlenskir ríkismiðlar greindu frá því að uppreisnarmenn hefðu varpað sprengjum í Austur-Ghouta og fellt tvo Assad-liða. Þá greindi líbanska sjónvarpsfréttastöðin al-Manar, sem tengist bandamönnum Assads í Hezbollah, frá því að sýrlenski herinn myndi senda sveitir sínar að Austur-Ghouta.
UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, sendi frá sér yfirlýsingu í gær um þann mikla fjölda barna sem farist hefur í átökum undanfarinna daga á Damaskussvæðinu. Þar sagði að engin orð gætu lýst hryllingnum. Í kjölfarið fylgdu tíu auðar línur og svo stutt útskýring. „UNICEF gefur nú út þessa auðu yfirlýsingu. Við höfum engin orð til að lýsa þjáningu þessara barna. Eiga þeir sem eiga sök í málinu einhver orð til að réttlæta þessa villimennsku?“
Sjá einnig: Óttast að Austur-Ghouta sé hið nýja Aleppo
Staffan de Mistura, erindreki SÞ í Sýrlandi, sagði stefna í að Austur-Ghouta yrði önnur Aleppo. „Ég vona að við höfum lært af þeim harmleik,“ sagði de Mistura en orrustan um borgina stóð yfir í um fjögur ár, kostaði tugi þúsunda lífið og lauk með sigri Assad-liða.
Samkvæmt Reuters fara átök stjórnarhersins og uppreisnarmanna nú harðnandi víðs vegar um landið og er ástæðan sögð sú að nú hafi Assad gefið í í von um að binda enda á uppreisnina.
Austur-Ghouta á að heita átakalaust svæði samkvæmt samningum hlutaðeigandi aðila. Slíkir samningar ná þó ekki til hreyfinga öfgamanna með tengsl við hryðjuverkasamtökin al-Kaída. Samkvæmt Reuters eru ein slík samtök með fámennt lið í Austur-Ghouta og segja aðrir uppreisnarmenn á svæðinu að Assad-liðar noti viðveru öfgahreyfingarinnar sem afsökun til þess að halda áfram sprengjuárásum sínum.
Rússar segja fréttir ýktar
Svæðið er síðasta stóra vígi uppreisnarmanna nærri höfuðborginni Damaskus en það er algjörlega umkringt svæðum þar sem stjórnarherinn er með yfirráð. Nærri 400.000 almennir borgarar eru innlyksa í Austur-Ghouta. Í desember greindu hjálparsamtök frá því að ástandið í Austur-Ghouta væri afar slæmt. Þar skorti íbúa mat, eldsneyti og lyf.Panos Moumtzis, einn sendiboða Sameinuðu þjóðanna á svæðinu, sagði í gær að nauðsynlegt og brýnt væri að binda enda á þjáningar íbúa Austur-Ghouta. „Fæstir íbúar eiga ekki annarra kosta völ en að skýla sér í kjöllurum eða sprengjubyrgjum með börnum sínum.“
Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, sagði hins vegar að fréttir af ástandinu í Austur-Ghouta væru ýktar. „Innan Sameinuðu þjóðanna eru vandamálin í bæði Austur-Ghouta og Idlib stórlega ýkt,“ höfðu rússneskir miðlar yfir ráðherranum en Rússar styðja ríkisstjórn Assads.