Enski boltinn

Souness: Klopp þarf að vinna bikara því hann er dæmdur af þeim

Anton Ingi Leifsson skrifar
Klopp þarf að vinna bikara. Það segir Souness.
Klopp þarf að vinna bikara. Það segir Souness. vísir/afp
Jurgen Klopp þarf að vinna einhverja titla því hann er dæmdur af þeim. Þetta segir Greame Souness, sparkspekingur Sky Sports og fyrrum knattspyrnustjóri Liverpool, eftir góðan sigur Liverpool á Crystal Palace á útivelli.

„Fullt af jákvæðum hlutum. Sóknarfótbolti sem flestir hlutlausir vilja horfa á en þeir þurfa að byrja vinna eitthvað því þú ert dæmdur af þeim að lokum. Það er það eina sem vantar.”

„Það verður að hrósa þeim sem er að koma inn með þessa leikmenn í félagið því þeir eru að gera gífurlega vel. Þarna eru frábærir leikmenn og Naby Keita er að koma í sumar og hann gefur þeim enn meira á miðjunni sem ég tel að vanti.”

„Ég held að þeir þurfi miðjumann sem sér öðruvísi mynd. Henderson, Milner og Wijnaldum og mögulega Emre Can líka eru allir góðir leikmenn og vinna vel en enginn hefur neina töfra og kannski kemur Keita inn með það.”

Liverpool er í þriðja sæti deildarinnar með 66 stig en liðið nær ekki Manchester City úr þessu. Liðið á þó enn möguleika á Meistaradeildartitlinum en liðið mætir City í 8-liða úrslitunum. Þau hefjast á miðvikudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×