Enski boltinn

Mourinho: Spiluðum fallegan fótbolta

Anton Ingi Leifsson skrifar
Jose Mourinho, stjóri Manchester United, segir að hans menn vilji halda í annað sætið. Hann var ánægður með fyrri hálfleikinn gegn Swansea en ekki þann síðari.

„Það væri frábært ef við hefðum spilað síðari hálfleikinn eins og spiluðum fyrri hálfleikinn,” sagði Mourinho í samtali við fjölmiðlamenn í leikslok.

„Við spiluðum mjög vel í fyrri hálfleik, við héldum Swansea til baka, skoruðum, spiluðum fallega og þetta var frábært. Í síðari hálfleik voru þeir sterkari en við létum það gerast.”

„Fjöldi leikmanna voru að spila landsleiki og voru þreyttir. Þeir héldu að leiknum væri lokið en þetta er allt í góðu. Öll stig eru mikilvæg því við viljum halda öðru sætinu.”




Fleiri fréttir

Sjá meira


×