Fótbolti

Rúrik skoraði jöfnunarmark Sandhausen

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Rúrik bjargaði stigi fyrir Sandhausen í dag
Rúrik bjargaði stigi fyrir Sandhausen í dag Vísir/Getty
Rúrik Gíslason lék allan leikinn í fremstu víglínu Sandhausen þegar liðið heimsótti St. Pauli í þýsku B-deildinni í fótbolta í dag.

Rúrik hefur verið að leika stöðu hægri bakvarðar að undanförnu en fékk nú tækifæri framar á vellinum og nýtti það heldur betur vel.

Sami Allagui kom heimamönnum yfir eftir tæplega hálftíma leik og leiddu þeir leikinn allt þar til á 54.mínútu þegar Rúrik jafnaði metin. Hann var réttur maður á réttum stað í vítateignum og nýtti sér vandræðagang í vörn St. Pauli.

Sandhausen situr í 7.sæti deildarinnar, átta stigum frá umspilssæti þegar sex umferðir eru eftir af deildarkeppninni.

 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×