Höfrungur og mörgæsir yfirgefin á sædýrasafni Kristín Ólafsdóttir skrifar 31. ágúst 2018 08:00 Höfrungurinn Honey virðist illa haldinn í lítilli laug á safninu. Mynd/Animal Rights Center Japan
Mikil reiði hefur gripið um sig í Japan eftir að í ljós kom að höfrungur, 46 mörgæsir og hundruð fiska hafa þurft að dvelja ein í yfirgefnu sædýrasafni svo mánuðum skiptir. Breska dagblaðið The Guardian greinir frá. Samtök um dýravelferð í Japan hafa lengi varað við því að dýrin eigi á hættu að drepast verði þeim ekki bjargað úr Inubosaki-sædýrasafninu í bænum Choshi, norðaustan við höfuðborgina Tokyo. Sérstaklega hefur verið einblínt á höfrunginn Honey, sem var skilinn eftir í lítilli laug á safninu. Myndir af höfrunginum sem teknar hafa verið síðustu mánuði sýna að aðstæður á safninu eru afar slæmar og er Honey talin sýna merki um streitu og vanlíðan. Þá búa mörgæsir í garðinum einnig við þröngan kost, ef marka má mynd sem tekin var af lufsulegum fuglunum innan um steinsteypuklumpa. Talið er að fyrrverandi starfsmenn sædýrasafnsins haldi lífi í dýrunum og gefi þeim að éta, þó að ekki sé ljóst hvaðan maturinn kemur. Þá hefur baráttufólki í samtökum um dýravelferð verið meinaður aðgangur á safnið síðustu mánuði. Eins og áður sagði var sædýrasafninu lokað í janúar. Forsvarsmenn sögðu lokunina skrifast á dræma aðsókn í kjölfar náttúruhamfara í norðausturhluta Japan árið 2011.
Dýr Mest lesið Stór hópur fullorðins fólks á Íslandi lifir eins og börn Innlent Banaslys á Suðurlandsvegi eftir grjóthrun Innlent Hvetja landsmenn til að búa sig undir neyðarástand Innlent Spyr um ábyrgð skólastjóra í stóra skómálinu Innlent „Hér er verið að saka fólk um alvarlega þætti“ Innlent Menningarslys verði frumvarpið samþykkt Innlent Suðurlandsvegi lokað vegna alvarlegs slyss Innlent Vilja úthýsa einkaþotum og þyrlum Innlent Trump „mjög reiður“ út í Pútín Erlent Reksturinn í uppnámi og uppsagnir fyrirhugaðar Innlent Fleiri fréttir Færri ánægðir með Trump og efnahagsmálin Sakar Rússa um tugi þúsunda stríðsglæpa „Ekki að grínast“ um þriðja kjörtímabilið Einn sagður hafa drepið hina tvo Hafa enn ekki náð utan um skaðann í Mjanmar ESB sagt íhuga að útvatna loftslagsmarkmið sín Morð í Svíþjóð ekki eins fá í áratug Le Pen sakfelld fyrir fjársvik og bannað að bjóða sig fram til forseta Fordæma árás á sjúkraliða Þrír fundust látnir í Noregi „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Trump „mjög reiður“ út í Pútín Þýsk geimflaug hrapaði eftir hálfa mínútu Erfitt að átta sig á áformum Trumps „Sonur minn hjálpar mér að halda áfram“ Fundu fólk í rústunum sextíu klukkustundum eftir skjálftann Kærir Musk til hæstaréttar vegna milljónagjafa til kjósenda „Við náum Grænlandi, hundrað prósent“ Leita enn og vara við miklum skorti á sjúkravörum Ný ríkisstjórn mynduð í Sýrlandi Hamasliðar tilbúnir að frelsa gísla fyrir vopnahlé Mette Frederiksen heldur til Grænlands Hundruð þúsunda mótmæla og 1900 handteknir Fleiri en 1600 látnir í Mjanmar Fyrrverandi kærasta Tate sakar hann um kynferðisbrot Heimsókn Vance óviðeigandi og óviðunandi Utanríkisráðherra Danmerkur: „Svona talar þú ekki við nána bandamenn þína“ Tala látinna komin yfir þúsund Segir orðræðu varaforsetans ósanngjarna Á annað hundrað látnir í Mjanmar Sjá meira