Arsenal er með fullt hús stiga í E-riðli Evrópudeildarinnar eftir 1-0 útisigur á Sporting í Portúgal í kvöld. Það var nóg fjör í fyrri leikjum kvöldsins í Evrópudeildinni.
Eina mark leiksins kom í síðari hálfleik en Danny Welbeck skoraði þá á 78. mínútu og tryggði Arsenal mikilvægan útisigur.
Í sama riðli sat Hannes Þór Halldórsson allan tímann á bekknum er Qarabag tapaði 0-1 fyrir Vorskla á heimavelli en eina markið kom í fyrri hálfleik.
Arsenal er á toppi riðilsins með níu stig, Sporting í öðru með sex, Vorskla í þriðja með þrjú en Hannes og félagar eru á botninum án stiga.
Guðlaugur Victor Pálsson var ekki í leikmannahópi Zurich sem vann 3-2 sigur á Bayer Leverkusen en Guðlaugur Victor hefur verið að glíma við meiðsli.
Zurich er á toppi riðilsins með níu stog og Leverkusen er í öðru sætinu með sex stig. Ludogorets og AEK eru með eitt stig svo Victor og félagar eru í góðum málum.
Matthías Vilhjálmsson kom inn á sem varamaður á 56. mínútu er Rosenborg fékk 3-0 skell gegn Salzburg á útivelli. Salzburg er með níu stig eftir leikina þrjá en Rosenborg án stiga.
Öll úrslit dagsins:
A-riðill:
AEK - Ludogorets 1-1
Zurich - Bayer Leverkusen 3-2
B-riðill:
Leipzig - Celtic 2-0
Salzburg - Rosenborg 3-0
C-riðill:
FCK - Slavia Prag 0-1
Zenit - Bordeaux 2-1
D-riðill:
Anderlecht - Fenerbache 2-2
Spartak Trnava - Dinamo Zagreb 1-2
E-riðill:
Qarabag - Vorskla 0-1
Sporting - Arsenal 0-1
F-riðill:
Milan - Real Betis 1-2
F91 Dudelange - Olympiacos 0-2

