Mikil brennisteinslykt er nú við Sólheimajökul og Jökulsá á Sólheimasandi að því er fram kemur í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.
Í tilkynningunni segir að mjög hægur vindur sé á svæðinu og verði það næstu daga þannig að gas getur safnast fyrir í lægðum.
Engar markverðar breytingar eru á vatna-, jarðskjálfta- eða gasmælum Veðurstofunnar á þessu svæði. Er fólki ráðlagt að halda sig frá lægðum í landslagi og vera ekki nálægt Jökulsá á Sólheimasandi.
Mikil brennisteinslykt við Sólheimajökul
Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
