Messan: „Þetta er algjör dómaraskandall og klárt rautt spjald á Mané“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. apríl 2018 13:00
Liverpool-maðurinn Sadio Mané var heppinn að fá ekki rauða spjaldið um helgina þegar Liverpool vann 2-1 endurkomusigur á Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni. Sadio Mané fékk gult spjald fyrir að reyna að fiska vítaspyrnu í fyrri hálfleik og seinna í leiknum kom upp atvik þar sem hann tók boltann greinilega viljandi með hendi. Ríkharð Guðnason og félagar í Messunni tóku fyrir þessi tvö atvik og bæði Ólafur H. Kristjánsson og Mikael Nikulásson höfðu skoðun á því hvort Mané átti að fá rautt eða ekki. „Samkvæmt ströngustu lagatúlkun þá er þetta annað gult spjald en ég er ánægður með það að dómarinn skuli sjá í gegnum fingur sér með þetta því hann hlýtur að segja við hina leikmennina sem hópast að honum: Það var brot en ég taldi það ekki nægilegt til að dæma það. Við skulum aðeins vera sanngjarnir,“ sagði Ólafur H. Kristjánsson. „Ég get alveg skilið það að Palace menn vildu fá seinna gula spjaldið á hann,“ sagði Ólafur. „Þetta er algjör dómaraskandall,“ sagði Mikael Nikulásson um þetta seinna atvik og bætti svo seinna við: „Ég er ekki Palace-maður en fyrir mér var þetta bara klárt spjald. Hann tekur boltann bara til sín með hendinni. Ég er sammála því að þetta gat verið aukaspyrna en hann dæmdi ekki aukaspyrnu. Þá er þetta bara því miður rautt spjald,“ sagði Mikael Nikulásson. „Þetta hefur hrikaleg áhrif á leikinn. Sadio Mané var besti leikmaður Liverpool í þessum leik en hann átti að fjúka útaf þarna. Svo tekur Klopp hann útaf tveimur mínútum seinna,“ sagði Mikael.Það má sjá alla umfjöllun Messunnar um spjaldið og ekki spjaldið á Sadio Mané í spilaranum hér fyrir ofan.
Enski boltinn Mest lesið Hrædd vegna ástandsins og þorði ekki í landsleikina Fótbolti „Þungu fargi létt eftir afar tilfinningaþrungna viku“ Handbolti Vilja reka liðsfélaga Rúnars Alex úr landi Fótbolti „Alsæl með að skilja við liðið á leiðinni á HM“ Handbolti „Þeir spila mjög fast og komast upp með það“ Körfubolti Svona verður enski boltinn á Stöð 2 Sport Enski boltinn Beckham: Hvernig voga þeir sér að segja þetta um Viktoríu mína Fótbolti Rose með þriggja högga forystu á Mastersmótinu Golf „Hann er langbesti varnarmaðurinn í þessari deild“ Körfubolti Uppgjörið: Valur-Grindavík 75-86 | Grindvíkingar í lykilstöðu Körfubolti Fleiri fréttir Svona verður enski boltinn á Stöð 2 Sport Arnar spilaði með besta „pöbbaliði“ Bretlands Salah nálgast nýjan samning Klopp mætir aftur til Liverpool í næsta mánuði England öruggt með fimm sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili Brady óskaði Willum, Alfonsi og félögum til hamingju Íslendingalið Birmingham upp í B-deild Sjáðu hitt rauða spjaldið sem Gylfi hefur fengið á ferlinum Settu met sem enginn vill eiga Of ungur til að auglýsa veðmál Newcastle heldur áfram að klífa töfluna Sóknarlína Chelsea veldur áhyggjum Van Dijk tjáir sig um samningaviðræðurnar Rekinn sem slakasti stjóri í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Neville hélt þrumuræðu um vélmennaboltann sem er að eyðileggja leikinn Guardiola hneykslaður á söngvum um móður Fodens „Ég horfði á leikinn og sparkaði tebollanum í gólfið“ Ekkert mark í grannaslagnum Chelsea tapaði stigum í markalausum Lundúnaslag Tottenham sendi Southampton niður í b-deildina Fyrsta deildartap Liverpool síðan í september „Ég er 100% pirraður“ Mikið breytt lið Villa vann mikilvægan sigur Ekki góður dagur fyrir Meistaradeildardrauma Brighton og Bournemouth Enskir fjölmiðlar segja Chelsea hafa brotið reglur UEFA Everton gerði grönnunum greiða með því að taka stig af Arsenal Amorim: Klikkun að halda að Man United geti unnið ensku úrvalsdeildina „Sorgardagur fyrir Manchester City“ Bruno bestur í mars Fordæma morðhótanir sem Tarkowski hafa borist Sjá meira