Einstök stemning á Unglingalandsmótum UMFÍ UMFÍ kynnir 22. júlí 2019 10:00 Jóhanna Íris Ingólfsdóttir, formaður Ungmennasambandsins Úlfljóts (USÚ) segir allt að verða klárt fyrir Unglingalandsmót UMFÍ, sem haldið verður á Höfn í Hornafirði.
Unglingalandsmót UMFÍ 2019 fer fram dagana 1. - 4. ágúst á Höfn í Hornafirði. Jóhanna Íris Ingólfsdóttir er formaður Ungmennasambandsins Úlfljóts (USÚ) en UMFÍ heldur mótið í samstarfi við USÚ og Sveitarfélagið Hornafjörð. Jóhanna segir undirbúning ganga vel og alla leggjast á eitt um að gera landsmótið sem glæsilegast. „Þetta er allt að smella saman. Mikil spenna er í bænum enda stór hátíð framundan og gaman að sjá að allir eru að taka til og gera bæinn fínan. Íbúafjöldinn mun margfaldast yfir helgina en við búumst við um 5000 - 7000 manns, “ segir Jóhanna en tæplega 2000 manns eru búsettir á Höfn.„Sveitarfélagið hefur komið til móts við okkur með margt og meðal annars gert nýtt æfingasvæði fyrir knattspyrnuna sem notað verður sem keppnissvæði á mótinu. Landsmótin eru frábært samvinnuverkefni UMFÍ, sambandsaðila og sveitarfélaga enda eru mótin mikil lyftistöng fyrir sveitarfélögin. Fyrir fyrsta mótið sem haldið var hjá okkur 2007 fengum við nýjan íþróttavöll og í aðdraganda mótsins 2013 kom ný sundlaug.“ Útbúið hefur verið sér tjaldsvæði fyrir mótsgesti og er hver sambandsaðili með merkt svæði. „Margir taka með sér veislutjöld þar sem fólk heldur hópinn og borðar saman. Þar skapast oft afar skemmtileg stemming. Við hvetjum fólk til þess að nýta sér tjaldsvæðin enda geta hótel og aðrir gististaðir verið þétt bókaðir ferðamönnum á þessum tíma. Tjaldsvæðin eru innifalin í mótsgjaldinu,“ segir Jóhanna og er sjálf vel sjóuð landsmótskona.„Ég fór alltaf með fjölskyldunni, fyrst þegar að yngri systkini mín voru að keppa og svo í framhaldi sem formaður USÚ. Börnin mín hafa alist upp við að fara á landsmót, þó svo að það elsta hafi aðeins öðlast keppnisrétt í fyrra. Svo er það yngsta bara rúmlega eins árs, svo ég veit alveg hvað bíður mín,“ segir Jóhanna og bætir við að stemningin sé jafnan einstök á Unglingalandsmótum UMFÍ. „Þar eru allir svo glaðir. UMFÍ á líka heiður skilið fyrir það hvernig þau hafa byggt afþreyinguna upp, allt miðast við að öll fjölskyldan geti leikið sér saman. Við leggjum mikla áherslu á að landsmótið er vímulaus fjölskylduhátíð í vernduðu umhverfi. Það gengur meira út á gleði en grjótharða keppni. Ekki þarf að vera í félagi eða „liði“ til þess að geta keppt. Ef þig langar til þess að keppa í fótbolta en ert ekki í liði, þá skráirðu þig bara og ferð í samsett lið. Það myndast oft vinasambönd og mörg dæmi eru um að krakkar biðji um að fá að keppa aftur með þeim sömu og þeir lentu með í liði í fyrra.“ Unglingalandsmót UMFÍ ganga ekki eingöngu út á keppnisgreinar. Landsþekkt tónlistarfólk kemur fram á kvöldin þar á meðal Úlfur Úlfur og Salka Sól, GDRN, DJ SURA og Daði Freyr. Og þá má nefna sundleika, fótbolta og frjálsíþróttaleika 10 ára og yngri. Hreyfingu fyrir alla, gönguferðir og flugeldasýningu. Öll afþreying er opin og kostar ekki neitt. Þá segir Jóhanna engan verða svikinn af náttúrufegurð Hornafjarðar né veitingum. „Höfn er humarbærinn og við höldum Humarhátíð á hverju ári. Við vitum að þeir sem eru saddir eru glaðir og matarnefnd mótsins hefur unnið hörðum höndum að því að þróa humarsnúða, svipaða pítsusnúðum nema fylltir humri og hvítlauk. Þá bjóðum við einnig upp á ljúffenga humarsúpu. Við hvetjum fólk eindregið til þess að leggja leið sína til Hornafjarðar um verslunarmannahelgina,“ segir Jóhanna og minnir á að hægt er að skrá sig á Unglingalandsmót UMFÍ til miðnættis 29. júlí næstkomandi.Þessi kynning er unnin í samstarfi við UMFÍ
Börn og uppeldi Frjálsar íþróttir Hornafjörður Íþróttir Mest lesið Dró Antonio grunlausan með sér í Gamla bíó Lífið Svanhildur selur 500 fermetra höll í Akrahverfinu Lífið Forsetagæinn hyggst hlaupa sitt lengsta hlaup til þessa Lífið Fundu ástina á ný eftir skilnað Lífið Fimm ákærðir í tengslum við andlát Perry Lífið Sunneva og Tanja ræða lýtaaðgerðirnar sínar Lífið Hjólakeppnin Grefillinn nýtur sífellt meiri vinsælda Lífið samstarf Borgaði tvöfalt meira fyrir miklu minna Lífið Sóldís Vala er Ungfrú Ísland Lífið Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Menning Fleiri fréttir Hjólakeppnin Grefillinn nýtur sífellt meiri vinsælda Golfvöllur staðsettur í mikilli náttúruparadís Sólríkar borgarferðir og ljúfar aðventuferðir með Úrval Útsýn Tekur Nutrilenk samhliða Femarelle og mælir hiklaust með Svefninn skiptir máli! Opnuðu kaffihús fyrir hunda og ketti – Einn Puppaccino takk! Skemmtilegur golfvöllur í einstaklega fallegu umhverfi Þrítugasta Síldarævintýrið haldið um verslunarmannahelgina Bylgjulestin endaði sumarið í Hafnarfirði Aukið öryggi og lífsgæði með bættri samgöngumenningu Ein af földu perlum Vestfjarða Slepptu við þynnkuna og vertu hress alla helgina! Bylgjulestin klárar ferðalagið í Hafnarfirði á laugardag Einn glæsilegasti 9 holu völlur landsins Myndaveisla frá Götubitahátíðinni þar sem Bylgjulestin var í beinni Bylgjulestin á Götubitahátíðinni Má augnskugginn þinn fara í kringum augun? Myndaveisla frá Kótilettunni þar sem Bylgjulestin var í beinni Spennandi ferðir til Taílands og Balí í haust Bylgjulestin á Kótelettunni Komdu í veg fyrir bitglaðar blóðsugur í sumar! Rómantísk bylgja í lestri með hækkandi sól Einstök upplifun í sveitasælu Óbrjótanleg lúxusglös í útileguna Myndaveisla frá Akureyri þar sem Bylgjulestin var í beinni Bylgjulestin verður í beinni frá Akureyri Nova klippir kaffiverðið Bylgjulestin var í beinni frá Humarhátíðinni Nýjar merkjavörur í hverri viku á Pop up markaði Optical Studio Nú set ég mig í fyrsta, annað og þriðja sætið Sjá meira