Vaknaði við ókunnan mann í íbúðinni Jóhann K. Jóhannsson skrifar 20. júlí 2019 08:30 Frá Laugardalnum. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm
Íbúi í Laugardal í Reykjavík vaknaði við að ókunnur maður væri inni í íbúð hans um klukkan fjögur í nótt. Aðkomumaðurinn var ölvaður og fór strax úr íbúðinni án þess að taka nokkuð með sér, að því er kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hann var einnig sagður hafa farið upp í bíl og ekið af stað og fannst ekki þrátt fyrir leit lögreglu. Um tíu leytið í gærkvöldi var tilkynnt um umferðaslys í Kópavogi. Þar hafði fjórhjól með tveimur mönnum oltið. Ökumaðurinn er grunaður um ölvun við akstur en hann kenndi eymsla í öxl og var fluttur á slysadeild til aðhlynningar og síðar vistaður í fangageymslu lögreglunnar fyrir rannsókn málsins. Farþegi fjórhjólsins slapp hins vegar ómeiddur. Þá var maður handtekinn í Háaleitis- og Bústaðahverfi snemma í gærkvöldi vegna þjófnaðar úr verslun. Maðurinn reyndist í annarlegu ástandi, var handtekinn og vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar málsins. Annar maður sem staðið hafði í ágreiningi í Kópavogi var einnig handtekinn í gærkvöldi en hann hafði verið með hníf við hönd. Maðurinn er grunaður um brot á vopnalögum, líkamsárás og eignarspjöll og var hann því vistaður í fangageymslum.
Kópavogur Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Sakleysi dætranna hafi gufað upp Innlent Sindri grunaður um fjárdrátt Innlent Þórdís Kolbrún gefur ekki kost á sér Innlent Ærandi þögn og klukkan tifar Innlent Ætla að kæra Sindra Þór fyrir áralangan fjárdrátt Innlent Spyr hvort foreldrarnir muni geta horft í augun á kennurum barnanna Innlent Tóku börnin inn óháð mönnun og fara frekar í fáliðun Innlent Trump ætlar að skattleggja Pútín svo hann hætti stríðsrekstri í Úkraínu Erlent Þau munu vinna úr hagræðingartillögunum Innlent Að minnsta kosti þrettán milljónir og „einbeittur brotavilji“ Innlent Fleiri fréttir Fallegustu bækur í heimi eru í Garðabæ Fátt virðist geta komið í veg fyrir að verkföll „Enn einn áfellisdómurinn yfir stjórnsýslu borgarinnar“ Staðfestir niðurfellingu rannsóknar á blaðamönnunum Áfellisdómur á stjórnsýslu borgarinnar og meintur fjárdráttur Að minnsta kosti þrettán milljónir og „einbeittur brotavilji“ Fleiri skora á Guðrúnu Þau munu vinna úr hagræðingartillögunum Skilorðsbundið fangelsi fyrir að áreita dreng í sturtuklefa Borgarstjóri vill ekki mikinn fjölda hælisleitenda í JL húsið Frestur til að skila inn tillögum rennur út í dag Fíkniefni í bala og milljónir í skúffu Spyr hvort foreldrarnir muni geta horft í augun á kennurum barnanna Vél frá Dubai lenti í Keflavík með veikan farþega Dæmdur fyrir höfuðhögg sem leiddi til dauða Ítreka að næringarráðleggingar fela ekki í sér boð og bönn Sjálfstæðisfélög skora á Guðrúnu Tóku börnin inn óháð mönnun og fara frekar í fáliðun Ætla að kæra Sindra Þór fyrir áralangan fjárdrátt „Lausa skrúfan“ seld á Akureyri Þórdís Kolbrún gefur ekki kost á sér Foreldrar stefna Kennarasambandinu vegna verkfallsaðgerða „Draumahúsið“ sem hefði getað sparað stórfé Sindri grunaður um fjárdrátt Hælisleitendur fá ekki inni í JL eftir allt saman Ærandi þögn og klukkan tifar Halla vill leiða VR áfram Strætó fær sérakrein á Kringlumýrarbraut Leyfið heyrir sögunni til Sakleysi dætranna hafi gufað upp Sjá meira