Það kemur ekkert annað til greina hjá Finni Guðbergi Ívarssyni, nemenda í tíunda bekk Myllubakkaskóla í Keflavík en að verða bakari. Það skyldu engum undra því hæfileikar hans í bakstri eru ótrúlegir, ekki síst þegar kemur að piparkökuhúsum því hann bakaði nýlega og setti saman nákvæma eftirlíkingu af skólanum sínum í formi piparkökuhúss.
Piparkökuhúsið hans Finns sem er af Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ í Keflavík er til sýnis í matsal skólans og er nákvæm eftirlíking af skólanum. Finnur lág yfir teikningum af húsinu, mældi það allt upp og lagði margra vikna vinnu í undirbúning piparkökuhússins áður en baksturinn og samsetningin hófst.
„Þetta er eitthvað í kringum fimmtán kíló af piparkökudeigi, kíló af súkkulaði og fimm hundruð grömm af flórsykri. Það var mjög mikill reikningur í þessu en þetta er fyrst og fremst rosalega mikil tímavinna“, segir Finnur.

Finnur Guðberg er með skýr markmið hvað hann ætlar að gera í framtíðinni en hann mun ljúka 10. bekk í Myllubakkaskóla næsta vor.
„Já, þá fer ég á samning hjá Jóni Árelíus í Kökulist hér í Reykjanesbæ“.
Umsjónarkennari Finns Guðbergs segir hann frábæran nemanda.
„Þetta er náttúrulega bara dásamlegur drengur, flottur nemandi sem stendur sig vel í því sem hann tekur sér fyrir hendur. Piparkökuhúsið hans af Myllubakkaskóla er ótrúlega magnað“, segir Hildur María Magnúsdóttir, kennari.

Það er ekki nóg með að Finnur Guðbergur sé með piparkökuhús í skólanum sínum því heima hjá honum er piparkökuþorp, sem hann bakaði og setti saman. Nokkur hús og kirkja sem prýða stofu heimilisins.