Fótbolti

„Leið eins og þeir væru að horfa niður til okkar í göngunum fyrir leik“

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Ragnar skoraði jöfnunarmark Íslands gegn Englandi á EM 2016.
Ragnar skoraði jöfnunarmark Íslands gegn Englandi á EM 2016. AFP/Getty

Ragnar Sigurðsson – miðvörður íslenska landsliðsins í knattspyrnu undanfarin ár – segir að enska landsliðið hafi litið niður á leikmenn Íslands er liðin mættust í 16-liða úrslitum Evrópumótsins í Frakklandi sumarið 2016.

Þetta kemur fram í ítarlegu viðtali Ragnars við Daily Mail í aðdraganda leiks Íslands og Englands sem fram fer á Laugardalsvelli klukkan 16:00 í dag. Engir áhorfendur eru leyfðir en leikurinn verður í beinni útsendingu Stöðvar 2 Sport.

Sýnt verður beint frá öllum leikjum Íslands í Þjóðadeildinni á Stöð 2 Sport. Riðlakeppnin hefst 5. september og lýkur 18. nóvember á þessu ári. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.

Ísland - England (Laugardalsvöllur) - 5.9.2020 

Belgía - Ísland (Óvíst) - 8.9.2020

Ísland - Danmörk (Laugardalsvöllur) - 11.10.2020

Ísland - Belgía (Laugardalsvölur) - 14.10.2020

Danmörk - Ísland (Parken) - 14.11.2020

England - Ísland (Wembley) - 18.11.2020

Leikurinn gegn Englandi á EM 2016 er eitthvað sem Ragnar mun aldrei gleyma. Ekki nóg með að hafa skorað jöfnunarmark Íslands eftir að Wayne Rooney kom Englandi 1-0 yfir með marki úr vítaspyrnu heldur átti Ragnar eina af tæklingum mótsins er hann stöðvaði Jamie Vardy sem var við það að sleppa í gegn.

Miðvörðurinn öflugi er því miður ekki með íslenska liðinu í dag vegna meiðsla.

„Ég mun aldrei gleyma þessum leik. Þetta var bara þannig leikur. Hann gaf manni frábærar minningar sem maður hugsar enn stundum um,“ segir Ragnar um leikinn fyrir fjórum árum.

„Það spyr mig aldrei neinn út í markið, öllum er sama um það. Það var frábær tilfinning að skora en almennt er mér alveg sama hvort ég skori eða ekki, ég vil bara vinna. Tæklingin var örugglega mitt besta augnablik í leiknum.“'

Tæklingin umtalaða.Jan Kruger/Getty Images

Fyrir þau sem muna ekki eftir marki Ragnars þá kom það eftir langt innkast. Kári Árnason flikkaði boltanum á Ragnar sem stakk sér fram fyrir Kyle Walker og hálfpartinn tæklaði boltann í netið.

„Í göngunum fyrir leik leið mér eins og þeir væru að horfa niður á okkur. Þeir voru svo vissir um að vera með betra lið og að þeir myndu valta yfir okkur. Það er allavega tilfinningin sem ég fékk. Það var svo markið þeirra sem drap þá, þá héldu þeir að þetta yrði ekkert mál.“

„Það besta við fótbolta er að allir geta unnið alla. Ef þú ert ekki með rétt hugarfar getur tapað fyrir andstæðingum sem eru mun lakari. Það er eitthvað sem við höfum nýtt okkur í gegnum árin.“

Ragnar segist enn muna eftir fagnaðarlátunum úti við hornfánann eftir að dómarinn flautaði leikinn af. Hann var svo valinn maður leiksins, eitthvað sem hann metur mikils í dag.

„Ég reyndi ekki að skipta á treyjum við neinn, ég er ekki mikið fyrir að safna þeim hvort eð er. Ég er ekkert á móti því en hvað ég að gera við allar þessar treyjur, ekki er ég að fara hengja þær upp á vegg.“

„Það tók enginn í hendina á neinum og ég sá enga leikmenn Englands þegar við vorum búnir að fagna. Ég var að fara í viðtal þegar ég labbaði fram hjá Roy Hodgson – þáverandi þjálfara Englands – hann tók í höndina á mér og sagði mér að ég hefði átt góðan leik,“ sagði Ragnar að lokum í viðtali sínu við Daily Mail.

Á endanum fór það svo að Ísland tapaði 5-2 fyrir Frakklandi í 8-liða úrslitum Evrópumótsins en þetta kvöld í Nice lifir að eilífu.


Tengdar fréttir

Vona að þetta verði fjarstæðukenndur dagur

„Þetta gæti auðvitað orðið erfiður dagur fyrir okkur en ég er ekki hræddur,“ segir Erik Hamrén, landsliðsþjálfari í fótbolta, fyrir leik Íslands við England í Þjóðadeildinni á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×